Enn stefnt á stórfellda stækkun Kringlunnar Jon Hákon Halldórsson skrifar 25. mars 2015 07:00 Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, telur að þörf sé fyrir meira verslunarhúsnæði og eftirspurn sé stöðugt að færast út fyrir miðborgina. aðsend mynd
Fasteignafélagið Reitir hyggur á mikla uppbyggingu á Kringlureitnum, en í aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir stækkun um 100 þúsund fermetra, auk íbúðarhúsnæðis. Þetta kemur fram í fjárfestakynningu Reita, en hún var rædd á fundi VÍB, eignastýringaþjónustu Íslandsbanka, á morgunfundi á mánudaginn. Gert er ráð fyrir að Kringlan stækki í átt að Kringlumýrarbraut, milli gamla Morgunblaðshússins og Sjóvár. Einnig er gert ráð fyrir byggingu 17-20 hæða turns nær Miklubraut. Almennt hlutafjárútboð í Reitum hefst í dag og stendur fram á föstudag, þar sem Arion banki býður 13,25 prósenta hlut til sölu. Stærð útboðsins nemur að lágmarki 5,5 milljörðum króna miðað við lágmarksgengi 55,5 krónur á hlut. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, sagði fasteignamarkaðinn hafa tekið nokkrum breytingum að undanförnu. Ekki sé lengur um algjöran kaupendamarkað að ræða og þó hann sé ekki orðinn algjör seljendamarkaður sé staðan töluvert betri. Hann sagði þörf fyrir meira verslunarhúsnæði og að eftirspurn sé stöðugt að færast lengra út fyrir miðborg Reykjavíkur. Hreyfing sé komin á húsnæði sem erfitt hefur reynst að selja eða leigja út og áætlað sé að auka nýtingarhlutfall úr 96% í 97%. Í fjárfestakynningunni kemur fram að Kringlan hefur verið í eignasafni Reita frá upphafi og er verðmætasta eign félagsins. Húsið er um tuttugu prósent af bókfærðu virði eignasafns. Reitir eiga tæplega áttatíu prósent af verslunarrými Kringlunnar en annað rými er í dreifðri eigu. Frumhugmyndir gera ráð fyrir að verslunarmiðstöðin verði stækkuð til vesturs og byggt verði yfir götuna á lóðum númer 1, 3 og 5 við Kringluna.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira