Þróun vaxta ræðst af komandi kjarasamningum Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. mars 2015 13:00 Már Guðmundsson og Arnór Sighvatsson hittu blaðamenn. fréttablaðið/vilhelm
Tilkynnt var í gær að Seðlabanki Íslands myndi halda vöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans verða því áfram 4,5 prósent. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri gerðu grein fyrir ákvörðun Peningastefnunefndar á fundi í gær. Þar er vísað í nýbirta þjóðhagsreikninga þar sem fram kemur að hagvöxtur var á síðasta ári 1,9%, sem er í takt við það sem Seðlabankinn áætlaði í febrúar. „Nýju gögnin staðfesta það mat nefndarinnar, sem fram kom í síðustu yfirlýsingu, að fyrri áætlanir um hagvöxt á fyrstu þremur fjórðungum ársins hafi falið í sér vanmat og breyta því ekki í meginatriðum mati nefndarinnar á nýlegum hagvexti og efnahagshorfum,“ segir í greinargerð Peningastefnunefndar. Þá segir að verðbólga hafi mælst 0,8% undanfarna mánuði og lítils háttar lækkun verðlags mælist sé horft fram hjá áhrifum húsnæðiskostnaðar. „Lítil alþjóðleg verðbólga og stöðugt gengi krónu halda aftur af verðbólgu og vega á móti áhrifum töluverðra launahækkana innanlands,“ segir í greinargerðinni. Vísbendingar séu um að verðbólguvæntingar hafi hækkað undanfarnar vikur sem mögulega endurspegli væntingar um að niðurstaða komandi kjarasamninga muni ekki samrýmast verðbólgumarkmiðinu. Þá ítrekar Seðlabankinn að haldist verðbólga undir markmiði og launahækkanir verði í komandi kjarasamningum í samræmi við verðbólgumarkmiðið gætu skapast forsendur fyrir frekari lækkun nafnvaxta. Miklar launahækkanir og vöxtur eftirspurnar gætu hins vegar valdið því að hækka þurfi vexti á ný.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira