Eimskip stórhuga í fjárfestingum 18. mars 2015 12:00 Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, væntir þess að tilkynnt verði um frekari fjárfestingar, og þær jafnvel stærri en að undanförnu, á næstu vikum og mánuðum.
Við kynntum þessi áform okkar um væntanlegar fjárfestingar í apríl í fyrra, um að við myndum skoða kaup á ýmsum fyrirtækjum í tengslum við rekstur okkar á Norður-Atlantshafi. Það er í raun tilviljun sem ræður því að fjárfestingarnar duttu allar inn á fyrsta fjórðungi rekstrarársins,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, spurður hverju það sæti að margar stórar fjárfestingar félagsins röðuðu sér á stutt tímabil nú í byrjun árs. „Sumt af þessu hafði jafnvel lengri aðdraganda,“ bætir Gylfi við. Fjárfestingarnar sem um ræðir eru hvort tveggja hér heima á Íslandi og erlendis. Í lok febrúar samdi félagið við VHE, Kælismiðjuna Frost og Suðurverk um byggingu á 10.000 tonna frystigeymslu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði þar sem umsvif Eimskips teygja sig aftur til ársins 1970, en þar er fyrir 3.000 tonna frystigeymsla. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi frystigeymslunnar verði tilbúinn til notkunar þegar líður á árið og verkinu verði að fullu lokið fyrir árslok. Auk þess er möguleiki fyrir hendi á að stækka nýju geymsluna í áföngum um allt að 14.000 tonn til viðbótar. Gylfi segir uppbygginguna í beinu sambandi við þróun í veiðum á uppsjávarfiski, og bæði hafi verið litið til Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Verkefnið sé sprottið af aðstöðuleysi til geymslu á sjávarafurðum á suðvesturhorni landsins vegna þessara umfangsmiklu veiða sem nú eru stundaðar, en Eimskip hefur ekki byggt frystigeymslur vegna starfsemi sinnar í áratug. Fjárfestingin er um 1,5 milljarðar króna, og gæti haft víðtæk hliðaráhrif á atvinnulíf í Hafnarfirði. „Það hafa innlend fyrirtæki viðrað hugmyndir um að setja upp uppsjávarverksmiðjur í næsta nágrenni við okkur, því með okkar fjárfestingu setjum við ýmislegt annað af stað. Eins hafa norskir aðilar sýnt því áhuga að setja upp sjávarútvegstengda starfsemi, t.d. króka- og netagerð. En við völdum Hafnarfjörð vegna styrkleika staðarins í afgreiðslu togara,“ segir Gylfi.Uppsveifla á Grundartanga Eimskip tilkynnti um 1,2 milljarða fjárfestingu og uppbyggingu á iðnaðar- og hafnarsvæðinu á Grundartanga skömmu áður en áformin í Hafnarfirði voru kynnt; kaup á þremur lóðum sem samtals eru 22.400 fermetrar og tveimur nýjum hafnarkrönum, en annar verður settur upp í Grundartangahöfn þar sem hann m.a. þjónar álveri Norðuráls, en hinn á Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði þar sem hann leysir eldri krana af hólmi. „Á Grundartanga eru fyrir mörg fyrirtæki og stórir viðskiptavinir eins og Norðurál, sem hyggur á stækkun. Höfnin verður mjög stór á íslenskan mælikvarða en þar eru engir kranar að þjónusta höfnina sem hefur því takmarkað tækifæri til móttöku skipa. Lóðirnar eru keyptar með uppbyggingu næstu ára í huga; Silicor Materials er að byggja sólarkísilverksmiðju austan megin við Norðurál, sem er 120 milljarða króna fjárfesting, en eins erum við að sinna járnblendiverksmiðju Elkem að hluta, og fleira kemur til með að fara af stað,“ segir Gylfi.Beggja vegna Atlantsála Frá áramótum hefur Eimskip tilkynnt um fjárfestingar í tveimur borgum á Nýfundnalandi í Kanada, í Danmörku og Hollandi auk Þýskalands. Í löndunum fjórum er fjárfest í frystigeymslu, flutningsmiðlun auk yfirtöku á vörugeymslu og uppsetningu á fyrirtæki í skiparekstri. Gylfi segir að hver fjárfesting fyrir sig lúti ólíkum lögmálum. Kaupin á flutningsmiðlun Jac. Meisner í Rotterdam eru byggð á langri rannsóknarvinnu, en fyrirtækið er gamalgróið og virt í heimalandinu og áhugi Eimskips beinist að frekari þjónustu við viðskiptavini hollenska félagsins um allan heim. Á Nýfundnalandi hefur Eimskip haft skipaviðkomur í St. Anthony síðan árið 2005, og kaup á frystigeymslunni þar eru til að styrkja þær. Flutningsmiðlunarfyrirtækið CargoCan hefur bækistöðvar í höfuðstað Nýfundnalands og er einn stærsti flutningsmiðlari þar í landi og mun efla starfsemina verulega þar. „Við verðum með þessum viðskiptum mjög öflugt félag á Nýfundnalandi í rekstri á frystigeymsluhúsnæði, en við erum að efla starfsemi okkar á þeim hafnarsvæðum þar sem við erum að vinna. Þetta má greinilega sjá í gegnum fjárfestingar okkar hérna heima en ekki síður við höfnina í Árósum sem er næststærsta höfnin í Skandinavíu í gámaumsýslu,“ segir Gylfi og bætir við að hrein veltuaukning Eimskips vegna þessara fjárfestinga og viðskipta erlendis sé um 16 milljónir evra eða 2,4 milljarðar íslenskra króna – sem er 3-4% aukning á veltu Eimskips á ári. Fjárfestingarnar á Nýfundnalandi, í Hollandi og Danmörku eru sex milljónir evra eða tæpar 900 milljónir íslenskra króna. Stofnun félags um skipaumsjón og rekstur í samstarfi við König & Cie í Hamborg í Þýskalandi er hrein viðbót við aðra þekkingu í skiparekstri Eimskips. Félagið verður með þessu samstarfi sérhæft í rekstri skipa, viðhaldi, og öllum almennum viðskiptum með skip. Eignarhlutur Eimskips í þessu nýja félagi er 80%. „Með þessu komumst við nær skipaiðnaðinum og í betri takt við það sem er að gerast í heiminum, bæði hvað varðar leigu og kaup á skipum, nýbyggingar og viðhald. Við erum að reyna að ná betri tökum á þessum lið í okkar rekstri og þeim kostnaði sem rekstri skipa fylgir og komast nær þessari Mekka skipaiðnaðarins sem er Þýskaland,“ segir Gylfi.Kína og Bakkafoss Í október árið 2011 tilkynnti Eimskip um smíði á tveimur nýjum 900 gámaeininga og 10.000 tonna gámaskipum í Kína. Fjárfestingin var um sex milljarðar og afkastageta félagsins talin aukast um 17% þegar bæði skipin væru komin heim. Skipin, sem eru þau fyrstu sem félagið hefur látið smíða fyrir sig í 15 ár, átti kínverka fyrirtækið að afhenda árið 2013, ef allt gengi að óskum. Lagarfoss, annað þeirra, kom til heimahafnar í Reykjavík 17. ágúst 2014, mun seinna en von var á og hafði Eimskip samið um 20% niðurfellingu á kaupverði skipanna tveggja vegna tafa. Þegar samið var um afslátt kaupverðsins átti að afhenda Bakkafoss nú í desember. „Nú er ljóst að skipið kemur ekki fyrr en nokkuð er liðið á árið 2016, og við erum á leiðinni til Kína til að skoða hvaða möguleika við eigum í stöðunni. Tryggingar okkar og ábyrgðir leyfa að á vissum tímapunkti getum við farið fram á að ganga út úr kaupunum og fengið endurgreitt. Þetta erum við að skoða núna, en ástæðan er að skipasmíðaiðnaðinum gengur illa hvarvetna í heiminum um þessar mundir og það á líka við um Kína. Skipasmíðastöðin sem annast okkar verkefni er að bíða eftir vilyrði frá kínverskum ríkisbönkum um fjármagn en við ætlum okkur ekki að bíða endalaust eftir því,“ segir Gylfi sem nefnir að kaup eða leiga á öðru nýju og sambærilegu skipi komi til greina. „Verðin hafa verið að síga mjög mikið á skipum af þessari stærð vegna þess að mörg gríðarstór flutningaskip eru í smíðum fyrir stærstu félögin. Skipin sem verið er að smíða eru allt að 19.000 gámaeiningar en í samanburði eru Lagar- og Bakkafoss bara kettlingar við hlið þeirra, aðeins tæplega 900 gámaeiningar. Menn eru að losa sig við minni skipin; einmitt af þeirri stærð sem hentar okkar rekstri og hafnaraðstöðu hér á landi en nokkrir þættir eru til staðar hér á landi sem setja takmarkanir á okkur við val skipa, svo sem kranaleysi á höfnum, stærð hafnanna og dýpt þeirra,“ segir Gylfi en bætir við að Eimskip stefni að því að reka stærri skip í framtíðinni til að ná upp þeirri stærðarhagkvæmni sem sækjast þarf eftir í öllum rekstri.Fleira í farvatninu Spurður hvort Eimskip hugleiði frekari fjárfestingar eftir þessa „hrinu“ sem nú hefur staðið í nokkrar vikur segir Gylfi að margt sé í farvatninu. „Það eru fleiri fjárfestingar í burðarliðnum, sem mögulegt er að verði tilkynnt um á næstu vikum og mánuðum. Leiðarljós okkar er að kaupa félög sem er vel stjórnað og henta vel okkar rekstri; samruni sem við getum nýtt okkur til að ná niður kostnaði og félög sem eru á þeim markaði sem við erum að vinna á. Við erum að leita slíkra tækifæra fyrir samstæðuna,“ segir Gylfi sem treystir sér ekki til að nefna dæmi um einstakar fjárfestingar á þessum tímapunkti. „Ég get þó sagt að þær fjárfestingar eru af svipuðum toga og stærri en þær sem gengið hefur verið frá að undanförnu,“ segir Gylfi en fjárfestingarnar sem tilkynnt hefur verið um á síðustu vikum, að nýju skipunum tveimur meðtöldum, eru um 10 milljarðar króna.
Mest lesið Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Neytendur Olíuefni í Bugles sem eiga ekki að vera í snakkinu Neytendur „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Viðskipti erlent Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Arctic Fish Viðskipti innlent „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Fleiri fréttir „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf