Allir stjórnarmenn hætta jón hákon halldórsson skrifar 4. mars 2015 07:00 Jan Petersen hefur verið forstjóri bankans um árabil. fréttablaðið/gva
Allir stjórnarmenn í BankNordik hyggjast segja af sér og verður ný stjórn því kjörin á næsta aðalfundi bankans sem fer fram þann 25. mars næstkomandi á Hótel Færeyjum í Þórshöfn. Bankinn var skráður tvíhliða í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Kaupmannahöfn árið 2007 og hefur verið skráður þar síðan. Bankinn er með fimm útibú í Færeyjum, nítján í Danmörku og eitt á Grænlandi. Við starfi stjórnarformanns tekur Stine Boss, sem hefur setið í framkvæmdastjórn Nordea, stærsta banka á Norðurlöndunum, og Allianz. Ársreikningur BankNordik var birtur á þriðjudag í síðustu viku. Þar kom fram að rekstrarhagnaður bankans hefði aukist um 47 prósent frá fyrra ári og næmi 157 milljónum danskra króna, eða um 3100 milljónum íslenskra króna. Bættan rekstur mátti fyrst og fremst rekja til starfseminnar í Danmörku. Þá var gert ráð fyrir að bankinn greiddi 20 milljónir danskra króna (um 400 milljónir íslenskra króna) í arð. Rekstrartekjur bankans minnkuðu aftur á móti á síðasta ári, námu 789 milljónum danskra króna, eða tæplega sextán milljörðum íslenskra króna, sem er sex prósentum minna en árið áður. Starfsmenn bankans eru 506 og hefur þeim fækkað um 106 á þremur árum. „Það kemur alltaf að því, fyrr eða síðar, að það þarf að gera breytingar á stjórn,“ segir Klaus Rasmussen, fráfarandi stjórnarformaður bankans, í yfirlýsingu. Hann segir að stjórn bankans hafi setið í nokkuð mörg ár og leitt bankann í gegnum erfiða fjármálakreppu. Bankinn hafi þróast mikið og náð góðri stöðu á markaði og tvöfaldað stærð sína á sjö árum.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira