Vilja fá ferðamenn allt árið í Húsafell ingvar haraldsson skrifar 18. febrúar 2015 12:00 Stefnt er að því að opna Hótel Húsafell um miðjan júlí. fréttablaðið/stefán „
Aðalmarkmiðið er að koma ferðaþjónustunni hérna í heilsársrekstur og geta sinnt fjölbreyttum hópi ferðamanna allt árið,“ segir Bergþór Kristleifsson, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustunnar á Húsafelli, um Hótel Húsafell sem er í byggingu. „Það hefur ekki verið ferðamannastraumur til Húsafells yfir vetrartímann en við viljum breyta því. Við stefnum að góðri heilsársnýtingu,“ segir Bergþór en nú heimsækja um 80 þúsund manns Húsafell á ári hverju, nánast alfarið yfir sumartímann. Hótelið verður opnað þann 15. júlí næstkomandi. Þegar er byrjað að bóka herbergi á hótelið sem Bergþór segir að gangi ágætlega.Bergþór KristleifssonHótelið á að vera alhliða útivistarhótel að sögn Bergþórs. „Við erum við hlið hálendisins og ætlum að nýta okkur það. Hér verður margs konar afþreying, hellaferðir, jöklaferðir, gönguferðir og svo eru sund og böð hérna,“ segir Bergþór. Þá er einnig golfvöllur við hótelið. „Við verðum í samstarfi við Icecave sem mun bjóða upp á jöklaferðir inn í Langjökul,“ segir Bergþór. „Á neðri hæðinni verður þurrkherbergi fyrir útifatnað og aðstaða fyrir göngu- og útivistarfólk,“ bætir hann við. Bergþór telur að Vesturland hafi ekki verið almennilega á kortinu sem ferðamannastaður fyrr en nú. „Það er hótel í Reykholti og í Borgarnesi þannig að við teljum gott pláss fyrir okkur á þeim markaði,“ segir Bergþór. Hótelið verður á tveimur hæðum með 36 herbergjum, veitingastað og veislusölum. Þá er gert ráð fyrir 12 herbergja stækkun á hótelinu gangi reksturinn eftir væntingum. „Hótelið á að hafa alla burði til þess að verða fjögurra stjörnu hótel,“ segir Bergþór. Stefnt er að því að kostnaður við byggingu hótelsins verði um hálfur milljarður en það er Ferðaþjónustan á Húsafelli sem stendur fyrir byggingunni.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira