Valið mikill heiður Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. janúar 2015 12:00 Ómar Henningsson er einn fárra sem situr í CCIE-ráðinu. aðsend mynd
Ómar Henningsson, þjónustustjóri hjá Sensa, sem er dótturfélag Símans, hefur verið valinn í CCIE Advisory Counsil. Í þessu ráði sitja 25 manns frá öllum heiminum og er Ómar sá eini sem er frá Norðurlöndunum og einn af fimm frá Evrópu. Tæknifyrirtækið Cisco er með alls kyns prófgráður og CCIE er efsta gráðan í því. Þeir ákváðu að reyna að fá í lið með sér aðila á markaðnum til þess að þróa menntunarstefnuna og CCIE-gráðuna og þannig varð ráðgjafaráðið til. Ómar segist hafa fengið áskorun um að sækja um og ákveðið að bregðast við því. „Ég bjóst nú ekkert við því að þetta myndi gerast. En ég sótti um og mér til mikillar furðu þá buðu þeir mér að taka þátt í þessari nefnd,“ segir Ómar. Ómar segir að tilgangur ráðsins sé að tryggja áframhaldandi virði þessarar gráðu og einnig að þróa hana í þá átt sem hjálpar markaðnum. Hann segir að það sé mikill heiður að fá að vera með í þessu starfi. „Sérstaklega sem Íslendingur þar sem markaðurinn okkar er mjög lítill, en við höfum alltaf verið mjög framarlega í tækninni og verið að gera hluti sem að fáir aðrir eru að gera. Og það hefur komið fyrir að á stórum ráðstefnum hefur verið minnst sérstaklega á það sem við höfum verið að gera á Íslandi,“ segir Ómar. Ómar segir að Sensa hafi verið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík þar sem mikil vöntun hafi verið á þekkingu á þessu sviði inni í skólunum en á sama tíma aukist eftirspurnin eftir þessari þekkingu úti á markaðnum. Segja megi að eitt helsta áhyggjuefni þessara stóru tækniframleiðenda sé skortur á hæfu tæknifólki og þess vegna sé Cisco að taka þessa hluti svona alvarlega.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira