Rétt skal vera rétt Álfheiður Ingadóttir skrifar 24. janúar 2015 07:00 Þessi grein er skrifuð til að mótmæla því opinberlega sem lesa má á vef Borgarskjalasafns Reykjavíkur að faðir minn, Ingi R. Helgason hrl., sé höfundur dagbókar, e.k. njósnaskýrslu um nafngreinda félaga sína í hreyfingu ungra sósíalista og stúdenta, dagbók sem rataði í einkaskjalasafn Bjarna Benediktssonar, fyrrum forsætisráðherra. Jafnframt fer ég fram á að Borgarskjalasafnið birti opinberlega leiðréttingu á þessum aðdróttunum. Nú keppast hægri menn við að endurskrifa söguna og einstaka gengur jafnvel svo langt að hreykja sér af því að hafa borið fé á menn og skrifað njósnaskýrslur á næturþeli fyrir Bjarna Benediktsson, Morgunblaðið og bandaríska sendiráðið. Ég hef megnustu skömm á slíku hátterni og ég veit fyrir víst að faðir minn var sömu skoðunar. Mér brá því verulega í brún að sjá að á vef Borgarskjalasafns Reykjavíkur er ein slík njósnadagbók úr einkasafni Bjarna Benediktssonar eignuð föður mínum. Þetta er ekki einhver vefur úti í bæ: Borgarskjalasafn er héraðsskjalasafn Reykjavíkur, undir faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns, og því ber m.a. að safna og tryggja vörslu gagna „með… varðveislu sögu íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi“. Gögn í vörslu safnsins eru tiltæk til fræðilegra rannsókna.Dagbók njósnara Ritari dagbókarinnar fylgist grannt með samferðamönnum sínum um borð í Dronning Alexandrine frá Reykjavík til Kaupmannahafnar 27. júlí til 1. ágúst 1951. Um borð var m.a. 40 manna hópur félaga úr Æskulýðsfylkingunni, Iðnnemasambandi Íslands og Félagi róttækra stúdenta, á leið til Berlínar á heimsleika og heimsmót æskunnar sem þar var haldið. Í dagbókinni lýsir njósnarinn því hvernig hann kemur sér inn undir hjá mönnum eins og Ólafi Jenssyni, Magnúsi Kjartanssyni, Eiði Bergmann, Gísla Ásmundssyni, Högna Ísleifssyni, Jóni Norðdahl, Láru Helgadóttur – svo nokkur nöfn séu nefnd – en allt voru þetta vinir og félagar föður míns til margra ára. Ritarinn gægist í farangur samferðamanna sinna, kemur auga á merki með mynd Jóns Sigurðssonar í skjalatösku Jóns Norðdahl, skráir niður hvað Ólafur og Högni eru að lesa, að Magnús hittir „kommúnistann“ Erlend Patursson í Þórshöfn og tíundar að hópurinn sé að æfa Bí, bí og blaka og Ríðum ríðum. Honum þykir miður að heyra ekki orðaskil þegar þeir Magnús, Ólafur, Gísli og Högni spjalla saman á næsta borði. Hann gumar af því að hafa áunnið sér trúnað hópsins, segist kominn „allvel inní klíkuna“ og spyr húsbóndann eftir hverju hann eigi sérstaklega að slægjast, gott væri að fá „tipp“ þar um.Bréfið um Huseby Á sömu vefslóð Borgarskjalasafns er að finna bréf frá föður mínum til fararstjóra íslensku frjálsíþróttamannanna sem fóru til keppni á leikunum í Berlín. Í bréfinu, sem er ritað á hans ritvél, með hans vandaða orðafari og venjubundinni undirskrift, lýsir faðir minn áhyggjum af fréttaflutningi Alþýðublaðsins um Gunnar Huseby sem þá var Evrópumeistari í kúluvarpi og segist treysta fararstjóranum og Finnbirni Þorvaldssyni frjálsíþróttamanni til að gæta þess að Huseby misstigi sig ekki í þessari ferð; hann eigi mannorð sitt undir því að hann fái góða keppni og lendi ekki á fylleríi. Er þar vísað til þess að Gunnar sem átti við áfengisvanda að stríða varð sjálfum sér og löndum sínum til minnkunar eftir keppni í London fyrr á þessu sama sumri. Til stóð að banna Huseby að keppa á erlendri grund en stjórn Frjálsíþróttasambandsins felldi þá tillögu með þeim afleiðingum m.a. að formaðurinn sagði af sér. Er greinilegt að faðir minn bar hag Gunnars Husebys fyrir brjósti eins og reyndar flestir landsmenn, en hann var einn mesti og ástsælasti íþróttamaður landsins á þessum tíma. Bréfið skrifaði faðir minn á 27 ára afmælisdegi sínum, sama dag og Drottningin kom til Færeyja, og sendi það til Kaupmannahafnar, líklega með þeim Finnbirni og Gunnari, sem flugu til Hafnar og sameinuðust Berlínarförum þar.Það er með ólíkindum Ekki veit ég hvernig þetta bréf föður míns til nafngreinds manns komst í hendur Bjarna Benediktssonar, en hitt er algerlega óskiljanlegt hvers vegna það er tengt á vef Borgarskjalasafnsins við dagbók njósnarans í Drottningunni. Einfaldur samanburður á ritvélum, rithætti og málfari hefði dugað hvaða skjalaverði sem er til að sjá að hér er ekki um sama bréfritara að ræða. En vefjist það samt fyrir einhverjum má á upphafsorðum dagbókarinnar sjálfrar sjá að faðir minn skrifaði hana ekki – því þar segir frá því að á bryggjunni í Reykjavík hafi „nokkrir kommúnistar“ kvatt ferðalangana, „einsog Ingi R. Helgason, Helga Rafnsdóttir og Jón Múli“. Það er með ólíkindum ef Borgarskjalasafn Reykjavíkur tekur það sem að því er rétt og birtir opinberlega án athugunar, og ber upp á föður minn látinn að hann hafi lagst í ferðalag til að njósna um félaga sína og senda helsta pólitíska andstæðingi sínum og þeirra skýrslu þar um. Slíkt er í mínum huga alvarlegur áburður og upploginn en – gæti sannarlega nýst einhverjum hægri þursinum við endurskrift sögunnar, væri honum ekki mótmælt. Um þetta tímabil í sögu pólitískra átaka á Íslandi mætti hafa mörg orð. Faðir minn var í fararbroddi sósíalista og í framvarðasveit Alþýðubandalagsins um árabil. Hann fór ekki frekar en aðrir vinstri menn varhluta af árásum Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Og fráleitt er að halda því fram að hann hefði valið sér einmitt þann miðil til viðtals um ævi sína og stjórnmálalíf. Atburðir undanfarinna daga og missera sýna hins vegar að það dugir ekki að láta hægri menn í friði við að ljúga upp á lifandi menn og látna. Og allra síst ef opinberar stofnanir eru látnar taka á sig ábyrgð á óhróðrinum eins og hér er gert. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun