Hættir vegna óánægju innan stjórnar Símans Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. janúar 2015 07:00 Samsett mynd. Magnús Ragnarsson, fyrrverandi aðstoðarmaður menntamálaráðherra, hefur látið af starfi formanns Þjóðleikhúsráðs eftir aðeins sex vikur í starfi.
Óánægja innan stjórnar Símans varð til þess að Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri vöru- og markaðssetningar hjá Símanum, sem einnig er fyrrverandi aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur látið af störfum sem formaður Þjóðleikhúsráðs, eftir sex vikur í starfi. Á mánudag birtist tilkynning á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins um að ráðherra hefði orðið við ósk Magnúsar um að leysa hann frá störfum í Þjóðleikhúsinu, þar sem hann gæti af persónulegum ástæðum ekki sinnt starfinu. Nýjan formann á að skipa á næstu dögum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vissu stjórnarmenn Símans ekki af formannsskipan Magnúsar fyrr en tilkynnt var um hana á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins 21. nóvember síðastliðinn. Innan stjórnarinnar var þeim sjónarmiðum haldið á lofti að á meðan stefnt væri að skráningu félagsins á markað væri ekki ráðrúm til þess að starfsmenn dreifðu kröftum sínum víðar með stjórnarsetum eða viðlíka störfum. Þá væri ekki við hæfi að starfsmenn settu sig í þá stöðu að nafn Símans gæti mögulega dregist inn í deilur um mál óskyld félaginu. Í samtali við blaðamann Fréttablaðsins um miðjan desember, sem pata hafði af þróun mála, sagðist Magnús ekki ætla að hætta sem formaður Þjóðleikhúsráðs, þótt staða hans hefði komið til tals innan Símans. Hann gerði ráð fyrir að geta í sátt og samlyndi sinnt báðum störfum. „Ég vonaðist til þess í bjartsýni minni að þetta gæti gengið,“ segir Magnús. Þá hafi hins vegar þegar verið hafið samtal um stöðuna milli hans og einstakra stjórnarmanna. „Spurningar vöknuðu um hvort heppilegt væri að framkvæmdastjórar væru að bæta á sig verkefnum í ljósi þess að við værum að fara á markað á næsta ári og mikið álag á mannskapnum,“ segir hann. Niðurstaðan hafi svo verið sameiginleg ákvörðun hans og stjórnarmanna um að heppilegast væri að vera ekki í aukaverkefnum í bili. Verkefni númer eitt væri að fara með stórfyrirtæki á markað. Uppsagnarbréf sendi Magnús svo ráðherra milli jóla og nýárs. „Ég sagði í umsögn til ráðherra og bréfi sem ég skrifaði Þjóðleikhúsráði að ég vildi undir engum kringumstæðum lenda í þeirri stöðu að geta ekki gegnt þessu embætti af einurð og festu. Verst væri fyrir alla ef maður væri að gera eitthvað með hálfu afli.“
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira