ESA rannsakar lánveitingar Seðlabankans til Íslandsbanka og Arion banka ingvar haraldsson skrifar 20. maí 2015 10:57 ESA er með lánveitingar Seðlabanka Íslands til Arion banka og Íslandsbanka í september og nóvember 2009 til rannsóknar. vísir/gva
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur hafið formlega rannsókn á hugsanlegri ríkisaðstoð í tengslum við lánssamninga milli Seðlabanka Íslands Seðlabanka Íslands, Íslandsbanka og Arion banka. Málið varðar tvo aðskilda skuldbreytingarsamninga á milli Seðlabanka Íslands og Íslandsbanka og Arion banka sem undirritaðir voru í september og nóvember 2009. Með samningunum var skammtíma veðlánum og verðbréfalánum frá Seðlabanka Íslands skuldbreytt í lán til langs tíma samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá ESA.Lánin höfðu veruleg áhrif á lausafjárstöðu bankanna ESA segir umrædd skammtíma veðlán hafa verið veitt með veði í ýmsum skuldabréfum, þar á meðal veðum í húsnæðislánasafni bankanna tveggja. Við endurfjármögnun nýju bankanna (Íslandsbanka og Arion banka), hafi innlendar eignir og skuldbindingar forvera þeirra, Glitnis and Kaupþings, verið færðar til nýju bankanna. Þar á meðal hafi verið skuldbindingar gagnvart Seðlabanka Íslands. ESA segir að þar sem skuldir bankanna við Seðlabankann hafi verið í formi skammtíma veðlána hefði tafarlaus endurgreiðsla haft veruleg áhrif á lausafjárstöðu nýju bankanna tveggja.Seðlabankinn segist hafa viljað hámarka endurheimtur Seðlabanki Íslands segir að með skuldbreytingunni hafi Seðlabankinn verið að verja hagsmuni sína og hámarka endurheimtur af lánunum. Því hafi umræddar ráðstafanir hafi því verið í samræmi við það sem almennur lánveitandi hefði gert í sömu stöðu. ESA telur hins vegar tilefni til þess að rannsaka hvort þeir lánaskilmálar sem Seðlabanki Íslands samþykkti hafi verið í samræmi við markaðskjör. Sé svo ekki kunna þeir að fela í sér ólögmæta ríkisaðstoð í skilningi EES-samningsins. ESA kallar nú eftir athugasemdum og upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum. Jafnframt kallar stofnunin eftir athugasemdum frá þeim aðilum sem telja sig eiga hagsmuna að gæta.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira