Finnfund og Creditinfo Group í samstarf í Austur-Afríku Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. apríl 2015 12:01 Reynir Grétarsson, forstjóri Creditinfo Group. vísir/ernir
Finnfund, þróunarfélag í eigu finnska ríkisins, hefur veitt 2,4 milljóna evra eða 354 milljóna króna lán til Creditinfo Group til uppbyggingar á fjármálaþjónustu og hagvexti í Austur-Afríku. Lánið frá Finnfund mun gera Creditinfo Group kleift að hraða uppvexti fyrirtækisins í álfunni sem hefur það að markmiði að bjóða upp á fjármálalausnir í löndum sem hafa takmarkað aðgengi að fjármagni. Þá veitir fyrirtækið einnig stuðning við lánveitendur svo þeir geti tekið upplýstari ákvarðanir varðandi lánveitingar og fjármálaþjónustu til breiðari hóps viðskiptavina. „Samstarfið við Finnfund er mjög mikilvægt fyrir Creditinfo Group. Frá því að fjármálakreppan reið yfir árið 2008 hafa íslensk fyrirtæki átt í nokkrum erfiðleikum með að taka lán erlendis. Þessi lánveiting Finnfund er vísbending um að það sé að breytast, fyrir okkur alla vega. Við trúum því að okkar litla framlag til þróunar innviða ýmissa landa eins og í Austur-Afríku hafi orðið til að bæta hag íbúanna. Við viljum aðstoða fólk og smærri fyrirtæki við að fá aðgang að fjármagni í þeim tilgangi að bæta hagvöxt og lífskjör. Við teljum lán Finnfund til Creditinfo Group vera staðfestingu á gagnsemi okkar og mikla viðurkenningu fyrir okkar störf,” segir Reynir Grétarsson, forstjóri Creditinfo Group. Í tilkynningu frá Creditinfo Group kemur fram að einungis um helmingur mannkyns hefur aðgang að fjármálaþjónustu. Í Afríku er aðgengið takmarkað og er það ástæða þess að Creditinfo Group hefur ákveðið að einbeita sér að því að koma á fót fjölda nýrra starfseininga Creditinfo Group í þessum heimshluta. Stöðvarnar geti skipt sköpum í viðleitninni til að minnka ójöfnuð, að koma á fót almennri fjármálaþjónustu og styðja við hagvöxt.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira