Hittir Þróttara tvisvar sinnum í viku í fótbolta jón hákon halldórsson skrifar 15. apríl 2015 08:15 Verkefninu lokið. Guðjón Auðunsson hringdi bjöllunni í Kauphöllinni við upphaf fyrsta viðskiptadags. fréttablaðið/valli
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, hefur staðið í ströngu undanfarið við að undirbúa skráningu fyrirtækisins í Kauphöll Íslands. Viðskipti með bréfin hófust svo á fimmtudag í síðustu viku. Guðjón hefur langa starfsreynslu að baki. Hann hefur verið forstjóri Reita í tæp fimm ár. Áður var hann í níu ár hjá Essó, sem síðar rann inn í N1, og þar áður hjá Eimskipi í níu ár. „Ég tók mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðssetningu frá Háskólanum í Álaborg í Danmörku. Þegar ég kom til Íslands var ég lektor í tvö ár á Bifröst eftir að honum hafði verið breytt í háskóla og kenndi þar,“ segir Guðjón. Hann segir að það hafi verið mikil reynsla að taka á móti námsefni í fimm ár og verja síðan tveimur árum á eftir í að miðla því til annarra. Guðjón sinnti fjölbreytilegum verkefnum hjá Eimskipi, eftir að hann byrjaði þar árið 1991. „Ég var yfir markaðsdeild og var framkvæmdastjóri Eimskips í Bandaríkjunum og svo í Hamborg í Þýskalandi í tvö ár,“ segir hann. Hann segist ekki geta svarað því til hvaða vinnustaður sé skemmtilegastur, Eimskip, Esso eða Reitir. „Þetta er eins og að gera upp á milli barnanna sinna. Þú færð mig ekki til að svara þessu,“ segir Guðjón og hlær. Hann tekur fram að það sé ótrúlega samheldinn hópur sem hann hafi hitt á báðum þeim fyrri vinnustöðum sem hann var á, Esso og Eimskip, og hann hitti fyrrverandi samstarfsmenn sína þaðan reglulega. Guðjón segist hafa unnið að skráningu Reita eiginlega allt frá því að hann byrjaði sem forstjóri. „Félagið var að langstærstu leyti í eigu viðskiptabankanna þriggja. Þeir gátu ekki átt þetta félag til framtíðar og um það var gert samkomulag við Samkeppniseftirlitið að þeir þyrftu að koma þessu félagi af sínum höndum innan tiltekins tíma,“ segir Guðjón. Verkefni hans á undanförnum árum hafi því verið daglegur rekstur fyrirtækisins, endurfjármögnun þess og undirbúningur fyrir skráningu á markað. Guðjón ver frítíma sínum að mestu leyti í hreyfingu. „Mér finnst útivera skemmtileg. Á sumrin er það golfið. Ég er dottinn í það að klífa fjöll og er að byrja að láta plata mig í það að vera á hjóli,“ segir Guðjón. Á veturna er hann aðallega í því að spila fótbolta. „Frambyggðir Þróttarar hittast tvisvar í viku og spila fótbolta saman og svo læt ég plata mig í spinning reglulega,“ segir Guðjón. Hann reyni því að hjóla inni á veturna en úti á sumrin.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira