Unnur Brá segir það þess virði að skoða hugmyndir Bjartar um fangelsismál Aðalsteinn Kjartansson skrifar 11. desember 2015 22:06 Unnur Brá Konráðsdóttir og Björt Ólafsdóttir. Vísir/Vilhelm/Stefán
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, segir að hugmyndir Bjartar Ólafsdóttur, þingkonu Bjartrar framtíðar, um að láta hættulausa glæpamenn taka út sína refsingu utan veggja fangelsis séu þess virði að skoða. Unnur Brá ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis fyrr í dag þar sem hún sagði að nú þegar væri til umræðu frumvarp innanríkisráðherra um fullnustu refsinga en að þessi mál væru alltaf til skoðunar. „Meginatriðið er að refsingin verði til þess að hafa fælingarmátt og eins það að stuðla að betrun þess sem brotið framdi. Þetta eru meginsjónarmiðin að baki,“ sagði Unnur Brá.Sjá einnig: Bankamenn eiga ekki að vera í fangelsi Björt ræddi hugmyndir sínar í Föstudagsviðtalinu í Fréttablaðinu og hér á Vísi í morgun. Þar velti hún því fyrir sér hvort ekki væri hægt að finna aðrar leiðir fyrir menn sem ekki eru hættulegir umhverfi sínu til að taka út dóma sína. „Ég nefni sem dæmi fanga sem mikið hefur verið rætt um, hvítflibbaglæpamenn sem sitja á Kvíabryggju. Ég veit ekki alveg af hverju við erum að loka þannig fólk inni.“ Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að mikilvægt sé að tryggja að skýrar reglur gildi um hverjir eiga að sitja inni í fangelsi, verði hugmyndir Bjartar skoðaðar frekar. „Það er ákaflega mikilvægt að leikreglurnar, ef menn ákveða að gera þetta, séu afdráttarlausar,“ sagði Páll aðspurður um tillöguna í samtali við Vísi fyrr í dag. „Það má ekki vera mikið um matskennd úrræði í þessu þannig að það sé undir til að mynda fangelsismálastofnun komið hvort menn teljast hættulegir eða ekki hættulegir eða æskilegir til að loka inni og svo framvegis.“
Tengdar fréttir Má ekki vera matskennt hver á að fara í fangelsi og hver ekki Páll Winkel fangelsismálastjóri segir hugmyndir á borð við þá sem Björt Ólafsdóttir þingkona kom með í morgun þurfi að vera vel útfærðar og skýrar. 11. desember 2015 16:21 Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Sjá meira
Má ekki vera matskennt hver á að fara í fangelsi og hver ekki Páll Winkel fangelsismálastjóri segir hugmyndir á borð við þá sem Björt Ólafsdóttir þingkona kom með í morgun þurfi að vera vel útfærðar og skýrar. 11. desember 2015 16:21