Hluthafar Marel fá hálfan milljarð króna í arð Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. febrúar 2015 17:47 Árni Oddur Þórðarsson er forstjóri Marel. vísir/anton
Tekjur Marel á fjórða ársfjórðungi 2014 námu 200 milljónum evra, eða 30 milljörðum króna, en voru 168,2 milljónir á fjórða fjórðungi 2014. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2014 nam 3 milljónum evra, eða 450 milljónum króna, en var 3,7 milljónir á sama tímabili árið á undan. Tekjur ársins 2014 námu 712,6 milljónum evra, um 107 milljörðum króna, og hækkuðu um 7,7% frá fyrra ári, þegar þær voru 661,5 milljón evra. Hagnaður á árinu 2014 nam 11,7, milljónum evra, eða 1755 milljónum króna. Hann var 20,6 milljónir árið á undan. Í afkomutilkynningu segir að hagnaður sé litaður af einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingu í rekstri á árinu 2014. „Árið 2014 var ár framfara og breytinga hjá Marel. Árið fór rólega af stað en með vorinu varð sjáanlegur viðsnúningur með markvissri markaðssókn samhliða aukinni skilvirkni í rekstri. Gott jafnvægi er á milli uppbyggingaverkefna fyrir viðskiptavini, (e. Greenfield) endurnýjunarverkefna og viðhaldsverkefna og þá er landfræðileg dreifing verkefna góð. Það er meðbyr á mörkuðum, sérstaklega í Norður-Ameríku sem nær að vega á móti umróti í Austur- Evrópu og öðrum löndum sem reiða sig á hrávöru,“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í afkomutilkynningu. Í tilkynningunni kemur fram að stjórn Marel mun leggja til að hluthafar fái greidd 0,48 evru sent í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2014. Miðað við fjölda útistandandi hluta nú nemur fyrirhuguð heildararðgreiðsla um 3,5 milljónum evra, eða um 525 milljónir króna miðað við gengi evrunnar í dag. Þetta samsvarar um 30% af nettó hagnaði ársins. Arðgreiðslutillaga þessi er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu félagsins.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira