Eyrir Sprotar lýkur fjármögnun Stefán Árni Pálsson skrifar 4. febrúar 2015 13:01 Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest og formaður fjárfestingaráðs Eyris Sprota, og Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, við undirritun samkomulagsins. Með á myndinni eru Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur á sviði nýsköpunar hjá Arion banka, og Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Eyris Sprota. mynd/aðsend
Sprota og vaxtasjóður Eyrir Invest hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar með þátttöku öflugra fagfjárfesta. Eyrir Sprotar hafa nú þegar fjárfest í nokkrum nýsköpunarverkefnum og fjölmörg verkefni til viðbótar eru í skoðun hjá sjóðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Eyrir Sprotar er rekinn af Eyrir Invest í samstarfi við Arion banka, en Eyrir og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins. Arion banki hefur stutt við nýsköpunarumhverfið á Íslandi á undanförnum árum m.a. með því að skipuleggja frumkvöðlahraðalinn Startup Reykjavík og með öflugum stuðningi við frumkvöðla. Aðrir fjárfestar eru lífeyrissjóðir og fagfjárfestar. Að loknum fyrsta áfanga fjármögnunar er stærð Eyris Sprota 2,5 milljarðar króna. Sjóðurinn á enn í viðræðum við nokkra áhugasama fjárfesta um þátttöku og er gert ráð fyrir að seinni hluta fjármögnunar verði lokað fljótlega. Arctica Finance annaðist umsjón með fjármögnun Eyris Sprota. „Það er mjög ánægjulegt að ljúka þessum áfanga í fjármögnun“, segir Örn Valdimarsson framkvæmdastjóri Eyris Sprota. Hann segir að sjóðurinn hafi verið að vinna í fjölmörgum áhugaverðum verkefnum undanfarna mánuði og fjármögnun sjóðsins gerir honum kleift að fylgja þeim verkefnum enn betur eftir. „Við væntum þess ennfremur að geta sagt frá fleiri nýjum fjárfestingum innan skamms.“ Þórður Magnússon, formaður fjárfestingaráðs Eyris Sprota, segir nýsköpunarumhverfi á Íslandi í dag afar frjótt og spennandi. „Umhverfið sem á undanförnum árum hefur verið byggt upp á Íslandi til stuðnings nýsköpun og sprotafyrirtækjum er afar vel heppnað til að byggja upp tæknilega hæfni þessara fyrirtækja. Hins vegar hefur skort fjármuni og getu til að byggja upp sölu og dreifingarkerfi erlendis. Þessi fjármögnun og fjármögnun inn í aðra sprotasjóði bætir úr brýnni þörf til að styðja við uppbyggingu fyrirtækja framtíðarinnar.“ „Arion banki hefur lagt ríka áherslu á að styðja við nýsköpun á Íslandi, m.a. í gegnum verkefnin Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Í gegnum þessi verkefni hefur Arion banki fjárfest í á fimmta tug nýsköpunarfyrirtækja. Okkur hefur hins vegar fundist vanta fjármögnunarkosti fyrir nýsköpunarfyrirtæki og því er sérstaklega ánægjulegt að koma að stækkun þessa sprota og vaxtasjóðs. Við höfum mikla trú á að þessi fjárfesting muni reynast bankanum arðsöm“, segir Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka hf.Mikil reynsla í fjárfestingaráði Í fjárfestingaráði Eyris Sprota sitja auk Þórðar, Hilmar Bragi Janusson, Kristín Guðmundsdóttir og Magnús Ingi Óskarsson. Hilmar er forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrum framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknarstarfs hjá Össuri hf. Kristín starfaði áður sem forstjóri og fjármálastjóri hjá Skiptum hf. og sem fjármálastjóri Granda hf. Magnús Ingi Óskarsson var einn stofnenda Calidris sem var selt til hugbúnaðarfyrirtækisins Sabre Airline Solutions árið 2010. Þórður Magnússon er stjórnarformaður Eyrir Invest hf. og hefur komið að uppbyggingu fjölmargra sprotafyrirtækja. Auk þeirra hefur Eyrir Sprotar tengsl við marga aðra einstaklinga sem munu veita fyrirtækjum í eignasafni Eyris Sprota mikinn stuðning og aðhald. Þessir einstaklingar hafa allir mikla reynslu úr atvinnulífinu sem mun nýtast við tæknilega uppbyggingu og sölu og markaðsstarf þessara fyrirtækja. „Við væntum þess að árangurinn láti ekki á sér standa. Það eru mörg góð og spennandi tækifæri í nýsköpunargeiranum í dag, sem við hjá Eyrir Sprotum hlökkum til að fá tækifæri til að skoða betur á komandi mánuðum“, segir Þórður.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira