Máli gegn Hraðpeningum vísað frá dómi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. febrúar 2015 15:42 Núverandi eigandi Hraðpeninga er erlent félag sem skráð er á Kýpur. Vísir
Máli sem Sverrir Einar Eiríksson höfðaði gegn Hraðpeningum ehf. og Skorra Rafni Rafnssyni var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á grundvelli þess að röngum aðila var stefnt í málinu. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að stefna hefði átt núverandi eiganda Hraðpeninga, félaginu Jumdon Micro Finance Ltd., en ekki Skorra Rafni. Sverrir höfðaði málið þar sem hann vildi fá það viðurkennt fyrir dómi að hann væri eigandi 500.000 króna hlutafjár í Hraðpeningum. Samkvæmt tilkynningu um stofnun félagsins í desember 2009 kom fram að stofnendur og stjórnarmenn væru þrír, Sverrir og Skorri auk Gísla Rúnars Rafnssonar, hver með 33,333% hlut í félaginu. Í tilkynningunni sagði jafnframt að hlutafjársöfnun væri lokið og allt hlutaféð, 1,5 milljón króna, hafi verið greitt. Í ársreikningum félagsins fyrir árin 2009 og 2010 kemur fram að Skorri Rafn sé eigandi alls hlutafjár í Hraðpeningum en árið 2011 er áðurnefnt Jumdon Micro Ltd. skráð fyrir öllu hlutafé. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að Sverrir byggi kröfu sína á því að hann sé réttmætur eigandi 500.000 króna hlutar í Hraðpeningum þar sem hann sé skráður fyrir þeim í stofngögnum félagsins. Hann hafi aldrei samþykkt ráðstöfun fjárins eða afsalað sér rétti til þess og væri því réttmætur eigandi þess. Sverrir telur að Skorri Rafn „hafi misnotað aðstöðu sína með ólögmætum hætti, beitt blekkingum og slegið eign sinni á hlutafjáreign stefnanda og breytt hlutahafaskrá félagsins í samræmi við það.“ Því var hins vegar haldið fram af hálfu Hraðpeninga og Skorra Rafns að Sverrir „hafi ekki staðið við skuldbindingu sína um að greiða hlutafjárloforð í stefnda, Hraðpeningum ehf., í samræmi við undirritun sína þar um í stofnskjölum félagsins og geti hann því ekki talið til réttar yfir hlutafénu.“
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira