Ósyndir í djúpri laug Inga María Árnadóttir skrifar 21. september 2015 15:00 Landspítali -háskólasjúkrahús er kennslusjúkrahús sem þýðir að þar er veitt heilbrigðisþjónusta þar sem jafnframt er lögð áhersla á rannsóknir, þróun og kennslu. Þar eru nemar við störf í ýmsum heilbrigðisvísindagreinum en á því eru bæði kostir og gallar. Eins og gefur auga leið eru nemar enn að læra og geta því ekki talist til sjálfstæðra fagmanna með fulla ábyrgð. Til dæmis er allsendis óraunhæft að gera kröfur til hjúkrunarfræðinema sem útskrifaðs hjúkrunarfræðings eða læknanema sem útskrifaðs læknis. Nemar hafa ekki leyfi til að starfa sjálfstætt. Starfsleyfi eru fyrst gefin út eftir að einstaklingur lýkur námi og er það fyrst og fremst gert til að tryggja gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Sumir skjólstæðingar þjónustunnar eru afar lánsamir og lenda á metnaðarfulla og samviskusama nemanum sem er að vinna skólaverkefni og sinnir sjúklingi af stakri samviskusemi. Neminn setur upp fyrsta flokks meðferð, studda nýjustu og bestu þekkingu, og veitir smæstu atriðum ómælda og (oftast) hálfvandræðalega mikla athygli og áhuga. Allt gert undir handleiðslu klínísks kennara og sprenglærðs starfsfólks. Viðvera nema á vinnustöðum getur oft virkað sem vítamínsprauta fyrir starfsfólkið því þeir koma inn með nýja sýn og áhugaverða þekkingu úr bóknáminu. En sami skjólstæðingur gæti líka orðið óheppinn og þurft að leggjast inn að sumri til. Þá fer þorri starfsfólksins í sumarleyfi og nemar eru ráðnir í afleysingar. Þeir hafa hvorki fullgillt starfsleyfi né hafa þeir öðlast næga þjálfun í starfi. Sem betur fer er að vísu gerð sú krafa að þrautreynt starfsfólk sé á vakt þegar nemar eru að störfum, en, þegar álagið verður of mikið á það til að gleymast að neminn, sem sker sig að litlu leyti úr hópi starfsfólksins, fyrir utan seinleg vinnubrögð og stöku „uuu.. ég er ekki alveg viss“ og „bíddu ég skal spyrja“, hefur hvorki hæfni né leyfi til að axla þá ábyrgð sem oft lendir á herðum hans. Þegar síga fer á seinni hluta námsins fara nemendur að horfa fram í tímann og hugsa til þess hvað þeir þurfa að kunna þegar þeir verða fullgildir og útskrifaðir úr sínu námi. Óhjákvæmilega bæta nemendur á sig fleiri og flóknari verkefnum því sá tími sem þeir fá starfsleyfið í hendurnar nálgast jú óðum. Þeir vilja m.ö.o. vera búnir undir fyrirséð álag og tilheyrandi aukna ábyrgð í starfi að lokinni útskrift. Hugsunin að verða að geta framkvæmt ákveðin verk upp á eigin spýtur eftir örfáa mánuði, tvær vikur eða jafnvel á morgun, þrýstir á nemann til að prófa sig og athuga hvar hann er staddur. Fái nemi ekki fullnægjandi handleiðslu eða stuðning getur það orðið til þess að hann taki of mikla áhættu í starfi, sem getur í verstu tilfellum bitnað á öryggi sjúklinga. Hversu langt á veg sem nemi er kominn í náminu, hvort sem hann er að sinna sjúklingum sem starfsmaður eða nemandi, þarf ætíð að vera aðili á vakt sem er meðvitaður um ábyrgð sína gagnvart nemanum. Því þurfa aðstæður í vinnuumhverfinu að vera til þess fallnar að sá aðili hafi svigrúm til að fylgja nemanum eftir. Eins og staðan er í dag fá hjúkrunarfræðingar, sem starfa einnig sem klínískir kennarar, ekki greiðslur fyrir leiðbeiningu nema á spítalanum. Þeir taka við nemum, án þess að hafa um það val, því þetta er jú kennslusjúkrahús. Margir þeirra kvíða klíníska námstímabilinu vegna þess að í því felst gríðarlega aukið álag. Þá þurfa þeir ekki einungis að sinna áfram sínum hefðbundnu verkefnum og ábyrgð heldur bera þeir einnig ábyrgð á gjörðum nemans, auk þess að sjá til þess að neminn öðlist klíníska hæfni og leysi skólaverkefni sín, án nokkurrar þóknunar. Álagið hefur verið sérstaklega mikið á nemum, nýútskrifuðum og öðru starfsfólki í sumar vegna uppsagna og verkfalla hjúkrunarfræðinga og ennþá er mikil óvissa vegna þeirra uppsagna sem taka gildi 1. október nk. Ég vil því skora á stjórnvöld að veita Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og spítalanum fjárveitingu eyrnamerktri klínískri kennslu til að stuðla að öruggara starfsumhverfi svo að hjúkrunarnemar hætti að taka að sér of flókin verkefni, án nægilegs eftirlits, sökum anna á deildum sem gætu komið niður á öryggi sjúklinga. Atvik eða mistök í heilbrigðisþjónustu koma ekki einungis niður á sjúklingum heldur einnig þeim sem veldur og þeim sem verða vitni að. Því er til mikils að vinna með því að búa vel að nemendum á námstíma og fyrst eftir útskrift. Nemar þurfa að læra að synda. Hættum að henda þeim ósyndum út í djúpu laugina. En sé það nauðsynlegt, er lágmark að setja á þá kúta! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 27.04.2024 Halldór Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík Skoðun Skoðun Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar