Þekking og þjónusta í yfir 30 ár 15. apríl 2015 15:30 Gunnar Kristdórsson, stofnandi Dekkjahallarinnar, ásamt dóttur sinni, Elínu Dögg. Auðunn Níelsson
Dekkjahöllin er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið rekið í yfir þrjátíu ár. Reksturinn var smár í sniðum í fyrstu en hefur vaxið með árunum og státar nú af þrjátíu þjónustuhurðum í allt á starfsstöðvum sínum. Í dag er fyrirtækið með hjólbarðaþjónustu, smurstöð og þvottastöð á Akureyri og hjólbarðaþjónustu og smurstöðvar á Egilsstöðum og í Skeifunni og í Skútuvogi í Reykjavík. Stefnt er að því að fagna þrítugsafmæli fyrirtækisins á þessu sumri. „Reksturinn byrjaði reyndar enn fyrr í bílskúr fjölskylduheimilisins við íbúðagötu hér á Akureyri,“ segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar og einn eigenda fyrirtækisins. „Þegar reksturinn var orðinn of umfangsmikill fyrir bílskúrinn, þá var byggt húsnæði að Draupnisgötu 5 á Akureyri og haustið 1984 var opnað fyrir þjónustu þar.“ Dekkjahöllin opnaði síðan þjónustustöð á Austurlandi fyrst árið 1998 og í Reykjavík 2008.Kristdór Þór Gunnarsson, einn af eigendum Dekkjahallarinnar, á þjónustustöðinni á Egilsstöðum.Dekkjahöllin hefur í áratugi verið með eigin innflutning á dekkjum og er með mörg góð merki á sínum snærum. „Þar má til dæmis nefna Yokohama sem er í hópi stærstu hjólbarðaframleiðenda í heimi og sá elsti í Japan og mun dekkjaframleiðandinn fagna hundrað ára afmæli sínu eftir tvö ár,“ bætir Elín Dögg við.Persónulegt fyrirtæki með sál Samanlögð reynsla fjölskyldunnar á bak við fyrirtækið er vel á annað hundrað ár í bransanum. „Við erum einnig með mikið af góðu starfsfólki í vinnu hjá okkur sem hefur fylgt okkur mjög lengi og bætir í reynslubankann. Starfsmenn fyrirtækisins hafa því yfir mikilli þekkingu að ráða þannig að þeir geta auðveldlega ráðlagt viðskiptavinum við val á dekkjum. Dekkjahöllin er sannarlega persónulegt fyrirtæki með sál,“ segir Elín Dögg og brosir. Starfsmenn Dekkjahallarinnar hafa yfir að ráða mikilli reynslu og þekkingu úr bransanum.Framúrskarandi frá upphafi Dekkjahöllin hefur komið vel út frá upphafi mælinga Creditinfo en fyrirtækið var nýverið útnefnt framúrskarandi fyrirtæki fimmta árið í röð. „Við höfum markvisst verið að byggja upp ábyrgan rekstur sem getur staðið undir sér og þeim skuldbindingum sem gerðar hafa verið. Við náðum að fara í gegnum hrunið án skuldaniðurfellinga eða sérstakrar aðstoðar frá fjármálafyrirtækjum. Á sama tíma stóðum við okkur samt sem áður vel í samkeppni á markaði og stuðluðum að umtalsverðum verðlækkunum á dekkjum hérlendis.“Mikið fjör í Höllinni. Starfsmenn Dekkjahallarinnar leggja mikið upp úr fljótri og góðri þjónustu.Selja dekk um land allt í gegnum dekkjahollin.is Dekkjahöllin hefur verið í fararbroddi hjólbarðafyrirtækja varðandi upplýsingagjöf á heimasíðu sinni. „Við höfum alltaf lagt mikið upp úr því að fylgja tækniþróuninni. Jafnframt því að leggja áherslu á að vera með nýjan og fullkominn vélbúnað á þjónustustöðvum okkar þá leggjum við okkur sérstaklega fram við að koma upplýsingum til viðskiptavina okkar í gegnum heimasíðuna, tölvupóst eða netspjall. Á heimasíðunni okkar, dekkjahollin.is, má sjá upplýsingar um dekkin sem við seljum og meira að segja er hægt að panta þau þar og fá send út um allt land. Með þessu komum við til móts við auknar kröfur neytenda um aðgengi að vörum og upplýsingum á netinu og þannig geta viðskiptavinir okkar keypt betri dekk á betra verði óháð staðsetningu,“ segir Elín Dögg.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira