Talsmaður FÍB segir olíufélögin of treg til að elta eldsneytislækkanir Ingvar Haraldsson skrifar 30. júlí 2015 07:00 Eldsneytisverð er lengi að lækka.
Íslensk olíufélög eru treg til að lækka eldsneytisverð og bíða yfirleitt þar til eitthvert þeirra tekur af skarið og lækkar olíuverð þó fullt tilefni geti hafa verið til verðlækkana um nokkra hríð. Þetta segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. „Aðhaldið virðist ekki alveg koma sem skyldi í innbyrðis baráttu milli félaganna. Þetta er auðvitað fákeppnismarkaður svo aðhaldið þarf stundum að koma utan frá,“ segir Runólfur og bendir á að fyrir hverja krónu sem álagning hækki fáist 350 milljónir króna úr vasa neytenda. Í gær hafði verð á bensíni haldist óbreytt frá 9. júlí en á sama tímabili hafði verð á Brent-hráolíu lækkað um 8,5 prósent. Þá hafði verð á dísilolíu haldist óbreytt frá 20. júlí. Eftir að Fréttablaðið fór að spyrjast fyrir um hvort tilefni væri til verðlækkana hjá Skeljungi rétt fyrir hádegi í gær lækkaði olíufélagið verð á bensíni um fjórar krónur og dísilolíu um sex krónur.Runólfur ÓlafssonVerð á bensíni hafði verið óbreytt hjá Skeljungi frá 6. júlí og verð á dísilolíu frá 16. júlí. Hin olíufélögin fylgdu í kjölfarið og lækkuðu eldsneytisverð til jafns við Skeljung. „Ég var akkúrat að vinna í lækkun þegar þú hringdir,“ sagði Heiðar Örn Gunnlaugsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Skeljungi, síðdegis í gær en hann hafði lítið viljað gefa upp um mögulegar verðlækkanir fyrr um daginn. „Það var byrjað að skoða þetta í gær, svo var ég bara að reikna þetta út í morgun,“ segir Heiðar spurður út í hvort verðlækkunin hafi haft langan aðdraganda. Þau svör fengust frá hinum olíufélögunum að ástæða lækkunarinnar væri lækkun eldsneytisverðs hjá Skeljungi. Runólfur segir að svigrúm hafi verið til verðlækkunar um talsverða hríð enda hafði verð á dísilolíu í Danmörku lækkað um ríflega 9 krónur í júlí og verð á bensíni um annað eins. Heiðar segir að Skeljungur vilji helst ekki breyta verði of oft. „Sveiflurnar geta verið miklar milli daga svo maður reynir aðeins að sjá, hvort sem það er hækkun eða lækkun,“ segir hann. Runólfur segir að á Íslandi ætti markaðsumhverfið að vera líkt því sem gerist í Danmörku en þar fylgi eldsneytisverð breytingum á heimsmarkaðsverði mun betur en hér á landi. „Í sjálfu sér ættu að gilda alveg sömu lögmál hér af því að íslensku olíufélögin eru að kaupa stærstan hluta af sínu eldsneyti frá erlendum olíufélögum sem eiga birgðirnar hér heima og er því keypt á gengi hvers dags,“ segir Runólfur. Leiðrétting 9:10: Þau leiðu mistök urðu að að verðlækkanir olíufélaganna í júlí voru sagðar hafa átt sér stað í júní í fyrri útgáfu fréttarinnar og í Fréttablaðinu í dag. Hlutaðeigandi eru beðnir afsökunar á því.
Tengdar fréttir Lægra olíuverð sparar milljarða Verð á skipaolíu er 46 prósentum lægra en það var að meðaltali á síðasta ári. 28. apríl 2015 07:45 Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira
Lægra olíuverð sparar milljarða Verð á skipaolíu er 46 prósentum lægra en það var að meðaltali á síðasta ári. 28. apríl 2015 07:45