Sameiginleg útskriftarathöfn diplómanema: „Ég er rosalega stolt“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 24. apríl 2015 11:42 Steinunn Ása hefur farið fremst í flokki þeirra sem vilja leyfa diplómanemum með þroskahömlun að útskrifast í Laugardalshöll. Vísir/Ernir/Auðunn „
Ég er rosalega stolt,“ segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, fyrrum nemendi í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands en nú hefur verið ákveðið að halda sameiginlega athöfn fyrir alla diplómanema á Menntavísindasviði. „Þetta er besta niðurstaðan sem við gátum komist að,“ segir Steinunn sem barðist ötullega að því fyrir tveimur árum fyrir því að útskriftarárgangur sinn fengi að sækja útskriftarathöfnina í Laugardalshöll. Háskóli Íslands taldi það ekki möguleika þar sem að á grundvelli jafnréttissjónarmiða yrðu þá allir þeir sem útskrifast með gráðu úr diplómanámi að fá að vera viðstaddir athöfnina. Það eru fleiri hundruð einstaklingar. Diplómanemar í starfstengdu námi fyrir fólk með þroskahömlun bentu aftur á móti á að þau hafa ekki færi á að sækja sér æðri menntagráðu og því gilda ekki sömu sjónarmið um þau og aðra diplómanema. Þau eru aðeins 12 talsins og tekin inn á öðru hverju ári.Sjá einnig: „Háskólinn tekur ekki tillit til fatlaðra“ Háskóli Íslands heldur tvær brautskráningarathafnir á ári, aðra í febrúar og hina í júní.Vísir/E.Ól„Það er mikilvægt að við nemendurnir fáum að útskrifast og vera viðurkennd líka. Þetta er eina gráðan sem við höfum,“ útskýrir Steinunn Ása. Hún segist telja þetta lokaniðurstöðu í tveggja ára baráttu sinni í málinu og er ánægð með þetta. „Þetta er samt eitthvað sem hefði átt að skoða fyrr líka. En mér líður allavega betur með þetta svona. Það er ekki hægt að rökræða þetta endalaust.“ Útskriftarathöfn diplómanema frá Menntavísindasviði verður 21. júní í Stakkahlíð, daginn eftir sumarbrautskráningu háskólans. „Já Menntavísindasvið hefur ákveðið að halda útskriftarveislu fyrir alla diplómanema,“ staðfestir Lilja Össurardóttir, aðjúnkt í þroskaþjálfafræðum og upplýsingafulltrúi fyrir hið starfstengda nám diplómanema með þroskahömlun. „Okkur fannst þetta rosalega góð lausn.“ Hún bendir á að sjónarmið beggja aðila í málinu séu skiljanleg og því sé þetta ánægjuleg niðurstaða eftir að málið virtist vera stál í stál. „Það hefur alltaf verið athöfn fyrir nemendur sem útskrifast úr starfstengdu diplómanámi fyrir þroskahamlaða. Sviðsforseti hefur komið og veitt þeim sín útskriftargögn og haldið ræðu. Rektor kom einnig í fyrra. En núna verður útskriftin stærri og meiri,“ segir Lilja.
Tengdar fréttir Skemmdarverk unnin á GÆS: „Látum ekkert á okkur fá“ "Við gefumst ekki upp. Við kunnum það ekki og viljum það ekki,“ segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, einn rekstraraðila kaffihússins GÆS, en töluverðar skemmdir voru unnar á húsinu í gærkvöld. Hurð kaffihússins var eyðilögð og rúða brotin. 25. júlí 2014 22:43 Upplifir sig ekki fatlaða Steinunn Ása Þorvaldsdóttir hefur síðastliðin ár barist gegn fordómum í garð fatlaðs fólks og staðalímyndum, meðal annars með sjónvarpsþáttagerð, kennslu í Háskóla Íslands og starfi sínu á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. 31. október 2014 09:26 Metfjöldi útskrifast úr Háskóla Íslands á morgun Alls verða 2065 kandídatar útskrifaðir í fjölmennustu útskrift frá stofnun skólans á morgun. 20. júní 2014 14:12 „Háskólinn tekur ekki tillit til fatlaðra“ "Ég er bara alveg rosalega sorgmædd yfir þessu. Það er alltaf sagt að það eigi ekki að mismuna fötluðu fólki en ég finn mikið fyrir því í þessu tilfelli. Þetta er bara algjör skandall“, segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Steinunn hefur nú lokið hefur tveggja ára diplómanámi frá Háskóla Íslands ásamt 16 öðrum fötluðum einstaklingum. Þau fá ekki að útskrifast við hefðbunda athöfn í Laugardalshöll þann 22 júní. 24. maí 2013 13:17 GÆS opnar á Bernhöftstorfu í sumar: "Þetta er draumurinn okkar“ "Við ætlum að glæða borgina lífi og gleðja alla sem vilja koma hingað.“ 10. júlí 2014 20:30 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira
Skemmdarverk unnin á GÆS: „Látum ekkert á okkur fá“ "Við gefumst ekki upp. Við kunnum það ekki og viljum það ekki,“ segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, einn rekstraraðila kaffihússins GÆS, en töluverðar skemmdir voru unnar á húsinu í gærkvöld. Hurð kaffihússins var eyðilögð og rúða brotin. 25. júlí 2014 22:43
Upplifir sig ekki fatlaða Steinunn Ása Þorvaldsdóttir hefur síðastliðin ár barist gegn fordómum í garð fatlaðs fólks og staðalímyndum, meðal annars með sjónvarpsþáttagerð, kennslu í Háskóla Íslands og starfi sínu á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. 31. október 2014 09:26
Metfjöldi útskrifast úr Háskóla Íslands á morgun Alls verða 2065 kandídatar útskrifaðir í fjölmennustu útskrift frá stofnun skólans á morgun. 20. júní 2014 14:12
„Háskólinn tekur ekki tillit til fatlaðra“ "Ég er bara alveg rosalega sorgmædd yfir þessu. Það er alltaf sagt að það eigi ekki að mismuna fötluðu fólki en ég finn mikið fyrir því í þessu tilfelli. Þetta er bara algjör skandall“, segir Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Steinunn hefur nú lokið hefur tveggja ára diplómanámi frá Háskóla Íslands ásamt 16 öðrum fötluðum einstaklingum. Þau fá ekki að útskrifast við hefðbunda athöfn í Laugardalshöll þann 22 júní. 24. maí 2013 13:17
GÆS opnar á Bernhöftstorfu í sumar: "Þetta er draumurinn okkar“ "Við ætlum að glæða borgina lífi og gleðja alla sem vilja koma hingað.“ 10. júlí 2014 20:30