MP banki hagnast um hálfan milljarð Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2015 09:56 Sigurður Atli Jónsson er forstjóri MP banka.
Hagnaður MP banka á síðari árshelmingi 2014 nam 494 milljónum króna samanborið við 159 milljóna króna tap á fyrri árshelmingi. Hagnaður á árinu 2014 í heild er því 335 milljónir króna eftir skatta, samanborið við 477 milljóna króna tap árið 2013. Bætt afkoma í rekstri MP banka á síðari hluta ársins 2014 skýrist meðal annars af því að rekstrartekjur jukust um 23% á milli árshelminga. Rekstrartekjur námu 1.836 milljónum króna á síðari árshelmingi, en voru 1.492 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekstrartekjur ársins í heild námu því 3.328 milljónum króna. Hreinar þóknanatekjur jukust um 12% á milli árshluta 2014, en þær námu 814 milljónum króna á fyrri hluta ársins og 916 milljónum króna á síðari hluta ársins. Hreinar þóknanatekjur ársins 2014 í heild námu því 1.730 milljónum króna. Hreinar vaxtatekjur lækkuðu um 7% á milli árshelminga. Þær námu 628 milljónum króna á síðari hluta ársins en voru 674 milljónir króna á fyrri hluta þess. Fyrir árið í heild námu hreinar vaxtatekjur 1.302 milljónum króna. Verulegur viðsnúningur varð í fjárfestingartekjum á milli árshelminga og námu þær 234 milljónum króna á síðari hluta ársins, m.a. vegna söluhagnaðar af eignum bankans í Litháen. Vegna umfangsmikilla hagræðingaraðgerða sem gripið var til á fjórða ársfjórðungi 2013 og á fyrri hluta ársins 2014 hefur kostnaður bankans lækkað verulega. Þannig hefur rekstrarkostnaður lækkað um tæpar 600 milljónir króna á milli ára, farið úr 3.669 milljónum króna árið 2013 niður í 3.071 milljónir króna árið 2014. Nemur lækkunin um 16% á milli ára og um 10% á milli árshelminga 2014. Eigið fé bankans í lok árs 2014 nam 5.597 milljónum króna og heildareignir námu 49.344 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall bankans hefur hækkað um 3,2 prósentustig á árinu og var 17,4% í árslok 2014, samanborið við 14,2% í árslok 2013.
Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Skipta dekkin máli? Samstarf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Neytendur Fleiri fréttir Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Sjá meira