Eggert Benedikt hættir hjá N1 Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2015 19:12 Eggert Benedikt Guðmundsson var forstjóri N1 þegar félagið var skráð á markað. vísir/gva.
Eggert Benedikt Guðmundsson hefur komist að samkomulagi við stjórn N1 um að hann láti af störfum hjá félaginu. Við starfinu tekur Eggert Þór Kristófersson fjármálastjóri N1. Sá fyrrnefndi hefur verið forstjóri N1 frá árinu 2012. Með þessum breytingum hyggst stjórn N1 leggja áherslu á að lækka kostnað við yfirstjórn félagsins. Í tilkynningu kemur fram að nú þegar liggur fyrir að framkvæmdastjórum N1 mun fækka um einn þar sem ekki verður endurráðið í stöðu framkvæmdastjóra markaðssviðs, sem nýverið lét af störfum hjá félaginu. Staða fjármálastjóra verður auglýst laus til umsóknar á næstunni. „Þegar Eggert Benedikt var ráðinn til N1 stóðu miklar breytingar fyrir dyrum. Skráning félagsins á markað hafði verið ákveðin og lauk henni í desember 2013. Auk þessa voru gerðar viðamiklar skipulagsbreytingar sem m.a. fólu í sér stofnun Bílanausts og síðar sölu þess til þriðja aðila. Breytingar voru gerðar á vörustjórnun og birgðahaldi, m.a. með sameiningu á lagerhaldi félagsins í einu húsnæði í Klettagörðum. Þá var rekstrarkostnaður lækkaður með margs konar hagræðingu. Eggert Benedikt hefur leitt þessi verkefni og stjórnað þeim á farsælan hátt. Við viljum nota tækifærið og þakka Eggerti Benedikt fyrir góð störf og óska honum velgengni í framtíðinni“ segir Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1 í tilkynningu.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira