Fasteignafélagið Eik fer á markað í apríl Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2015 19:00 Á meðal eigna Eikar fasteignafélags er Turninn í Smáralind. vísir/vilhelm.
Stjórn Eikar fasteignafélags hefur ákveðið óska eftir skráningu í Kauphöllina að undangengnu hlutafjárútboði. Greint var frá þessu í dag. Á sama tíma sendi Eik frá sér afkomutilkynningu fyrir síðasta ár. Þar kemur fram að hagnaður félagsins eftir skatta nam 1.336 milljónum króna árið 2014 samanborið við 1.236 milljónir árið á undan, sem er 8% aukning á milli ára. Rekstrartekjur félagsins jukust um 95% á milli ára og námu 3.961 milljónum króna og voru leigutekjur þar af 3.753 milljónir. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.877 milljónum króna sem er 107% aukning frá árinu áður. Á árinu var gengið frá kaupum félagsins á fasteignafélögunum EF1 hf. og Landfestum ehf. sem hefur veruleg áhrif á reksturinn. Með kaupunum stækkaði fasteignasafn Eikar fasteignafélags um 161 þúsund fermetrar. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með söluferli og undirbúningi að skráningu Eikar á markað. Almenningi og stærri fjárfestum verður boðið að kaupa hlutabréf í félaginu í almennu útboði í aðdraganda skráningar sem gert er ráð fyrir að fari fram fyrir lok aprílmánaðar. Félagið hefur sett sér arðgreiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs. Í samræmi við stefnuna mun stjórn félagsins leggja til við aðalfund, sem haldinn verður 21. maí næstkomandi, að greiddur verði út 580 milljóna króna arður til hluthafa á árinu 2015 vegna rekstrarársins 2014.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira