Bílaleiga fyrir stuttar ferðir í Höfðatorgi Ingvar Haraldsson skrifar 4. mars 2015 07:00 Ingveldur Einarsdóttir segir að verkefnið verði hugsanlega útvíkkað með fleiri bílum sem leigðir verði út fyrir aðra en starfsfólk Höfðatorgs. fréttablaðið/gva
Avis hyggst opna bílaleigu fyrir styttri ferðir, svokallaða Snattbíla, í bílakjallaranum í Höfðatorgi í kringum næstu mánaðamót. Starfsfólk Höfðatorgs mun geta leigt bílana út. Það verða tíu bílar til að byrja með en í framhaldinu verður verkefnið hugsanlega útvíkkað að sögn Ingigerðar Einarsdóttur, markaðs- og þjónustustjóra Avis. Bílum verði þá fjölgað og þeir leigðir út fyrir aðra en starfsfólk hússins. Nú er unnið að því að leggja lokahönd á pantanakerfi fyrir þessa leigu. „Fólk þarf að vera skráð inn sem notandi hjá okkur. Þá getur það séð hvenær bíll er laus og bókar svo eftir því hvað þarf, klukkustund, tvær klukkustundir eða heilan dag. Síðan þarf það að skila bílnum aftur á sama stað og hann er tekinn,“ segir Ingigerður en viðskiptavinir munu opna og loka bílunum með snjallsímum. Reykjavíkurborg er fjölmennasti vinnustaðurinn í Höfðatorgi en um 400 manns starfa í byggingunni. Reykjavíkurborg hefur sjálf verið með tilraunverkefni með bílaleigu fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar í Höfðatorgi og í Ráðhúsinu.Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.„Við erum mjög spennt fyrir þessari þróun,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. „Þetta mun auðvelda fólki að koma til vinnu með öðruvísi ferðamáta en eigin bíl,“ segir Dagur og bætir við að með þessu verði hægt að nýta betur bílakjallarann við Höfðatorg og aðra staði þar sem lítið er af lausum bílastæðum. Reykjavíkurborg er með til skoðunar hvernig koma megi á fót fleiri slíkum bílaleigum en starfshópur hjá Reykjavíkurborg mun skila tillögum þess efnis á næstu vikum.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira