Lýsing lagði Leiguvélar í Hæstarétti Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2015 20:03 Að auki var Leiguvélum gert að greiða Lýsingu 350 þúsund krónur í kærumálskostnað.
Lýsing hf. sigraði Leiguvélar ehf. í Hæstarétti og því verða vinnutæki sem Leiguvélar höfðu fjármagnað með samningum við Lýsingu tekin með beinni aðfaragerð. Þar að auki var Leiguvélum gert að greiða Lýsingu 350 þúsund krónur í kærumálskostnað. Í einföldu máli snýst málið um að Leiguvélar fjármögnuðu tækjakaup með samningi við Lýsingu. Leiguvélar sögðu samningana vera lánasamninga en Lýsing sagði að um leigusamninga væri að ráða. Leiguvélar ehf. sögðu að þar sem að um lán væri að ræða, væri þau tengd með ólögmætum hætti við gengi erlendra gjaldmiðla. Lýsing vildi taka 42 tæki sem Leiguvélar höfðu fjármagnað með samningum víð Lýsingu á árunum 2005 til 2010. Flestir samningarnir voru í íslenskum krónum tengdir við gengi erlendra mynta. Leiguvélar skutu málinu til Hæstaréttar eftir að hafa tapað málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Í dómi Hæstaréttar segir að ósannað hafi verið að Leiguvélar myndu eignast tækin gegn ákveðinni greiðslu við lok leigutímans. Því lægi ekki annað fyrir en að um leigusamning væri að ræða. Þá segir að samkvæmt samningunum hefðu Leiguvélar ekki geta eignast tækin án frekari samninga á milli Lýsingar og Leiguvéla. Dóma Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur má sjá hér. Dómurinn var birtur í dag, en kveðinn upp á miðvikudaginn
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira