Þörf á starfsfólki sem kann að forrita og hanna jón hákon halldórsson skrifar 29. apríl 2015 09:15 Jónatan Arnar Örlygsson.
Tækniskólinn mun frá og með næsta hausti bjóða upp á tveggja ára nám í vefþróun með áherslu á viðmótsforritun. Það er nám á fjórða hæfnisþrepi, áframhald eftir stúdentspróf. „Það er mikil þörf á mönnum sem kunna bæði að forrita og hanna. Við erum að gera öðruvísi en háskólarnir sem eru með tölvunarfræði og Listaháskólinn með hönnun. Við erum að reyna að fara milliveg og fara dýpra í viðmótsforritunina, hönnunarhlutann og djúpt í framendaforritun. Þetta er mikil og góð viðbót við það sem er í boði nú þegar,“ segir Jónatan Arnar Örlygsson, verkefnastjóri hjá Tækniskólanum. „Þetta er meiri sérhæfing en tölvunarfræði og við erum ekki að fara eins djúpt í aðra forritun,“ bætir Jónatan við. Hann segir að námið sé búið að vera í undirbúningi í næstum tvö ár og hann hafi tekið við verkefninu um áramótin. „Það koma að þessu stórar vefstofur sem mótuðu námskrána því þær hafa þekkingu á hvað þarf inn í vefbransann. Það er alltaf að stækka og alltaf ný verkefni sem krefjast þessarar þekkingar,“ segir hann. Hann segir að námið sé samvinna atvinnulífsins og svo Tækniskólans. Jónatan segir að nemendur verði ekki margir á hverju ári eða um það bil 20. „Sérstaða námsins er að þetta á ekki að vera stór hópur og við erum að reyna að hafa þetta þannig að fólki líði eins og það sé að mæta í vinnuna og að þetta séu raunveruleg verkefni. Þetta verður mikið í fyrirlestraformi og svo mikil verkefnavinna. Þetta snýst líka um að vinna í hópum og að geta unnið með fólki,“ segir Jónatan.Námið er tveggja ára diplómanám og stefnt er að því að semja við skóla, meðal annars i Kaupmannahöfn, um að hægt verði að meta þetta nám upp í bachelor-gráðu.
Mest lesið Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent