Hagnaður Nýherja umfram áætlun ingvar haraldsson skrifar 29. apríl 2015 11:04 Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja segir rekstur fyrirtækisins hafa gengið vel það sem af er ári. vísir/vilhelm
Öll félög innan Nýherja samstæðunnar skiluðu hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. Heildarhagnaður samstæðunnar nam 41 milljón sem er örlítið minna en árið 2014 þegar hagnaðurinn nam 56 milljónum. Framlegð fyrirtækisins dróst einnig saman, úr 26,3% árið 2014 í 24,8% í ár. Hins vegar jukust tekjur félagsins um 14,1% milli ára. Rekstrarhagnaður nam 147 milljónum samanborið við 116 milljónir árið á undan. EBITDA félagsins nam 225 milljónum en var 191 milljón árið 2014. Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja segir reksturinn hafa gengið vel á ársfjórðungnum. „Samstæðan hefur nú skilað heilbrigðum hagnaði 5. ársfjórðunginn í röð, sem sýnir í reynd aukinn stöðugleika í rekstrinum. Töluverður tekjuvöxtur var frá sama tímabili í fyrra, sérstaklega hjá Nýherja og Tempo. Afkoma nú er lítillega yfir áætlunum. Við vinnum áfram að því að festa nýtt skipulag sem tók gildi síðasta haust í sessi og ná þeim markmiðum sem félagið setti sér um einfaldara skipulag, skilvirkara sölustarf og bætta þjónustu.“
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira