Icelandic Water Holdings semur við nýjan dreifingaraðila Stefán Árni Pálsson skrifar 17. mars 2015 10:12 Jón Ólafsson er stjórnarformaður og stofnandi Icelandic Water.
Icelandic Water Holdings hf, sem flytur út vatn undir merkinu Icelandic Glacial og dreifingarfyrirtækið Unique Foods Inc. frá Montreal í Kanada hafa gert með sér samning um dreifingu á Icelandic Glacial. Þetta kemur fram í tilkynningu fá fyrirtækinu. „Okkur er mikil ánægja að tilkynna að Unique Foods Inc. er nýr dreifingaraðili okkar í Kanada,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður og stofnandi Icelandic Water Holdings hf. í tilkynningunni. „Unique Foods Inc er leiðandi dreifingarfyrirtæki á drykkjavörumarkaðinum í Kanada og mun samstarfið styrkja vörumerki okkar enn frekar í Kanada auk þess sem það mun leiða til markvissari dreifingar á Icelandic Glacial á landsvísu.“ Vatninu frá Icelandic Glacial er tappað á flöskur úr lind fyrirtækisins í landi Hlíðarenda í Ölfusi og þaðan dreift víða um heim. „Við erum gífurlega ánægð með samning okkar við Icelandic Glacial,“ segir Jon Silver, forstjóri Unique Foods Inc. „Icelandic Glacial fellur fullkomlega að áherslum fyrirtækisins og mun standast allar kröfur neytenda er varðar tærleika, bragð og sjálfbærni“. Icelandic Glacial, er selt á 20 mörkuðum víða um heiminn. Auk Kanada er Icelandic Glacial til sölu í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Luxemborg, Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Kalíníngrad, Úkraínu, Kína, Taiwan, Macau, Tælandi, Suður-Kóreu, Singapore, Hong Kong, Perú og á Íslandi. Jafnframt notar franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior vatnið við framleiðslu á kreminu Dior Snow. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og eru Jón Ólafsson og Kristján Ólafsson stærstu hluthafar Icelandic Water Holdings ásamt bandaríska drykkjavöruframleiðandanum Anheuser Busch.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Bandaríkjadalur besti kosturinn fyrir Ísland Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira