Gefa alla sölu dagsins til góðgerðarmála Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. apríl 2015 11:24 Lovísa Pálmadóttir, markaðsstjóri Bestseller, og Ragnheiður Harladsdóttir, framkvæmdarstjóri Krabbameinsfélagsins, ræddu söfnunina í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Vísir/Bylgjan
Verslunarkeðjan Bestseller ætlar að gefa allan söluágóða verslana fyrirtækisins í dag til góðgerðarmála. Það þýðir að hver einasta króna sem viðskiptavinir verslana Bestseller reiða fram endar hjá góðgerðasamtökum. Starfsmenn Bestseller í einni af verslunum fyrirtækisins.Vísir/Bestseller Helmingur alls fés fer til Krabbameinsfélags Íslands en hinn helmingurinn skiptist á milli þriggja alþjóðlegra hjálparsamtaka; UNICEF, GAIN og Barnaheilla. Bestseller rekur verslanirnar Vila, Jack & Jones, Name it, Selected og Vero Moda sem verða opnar í 12 klukkustundir í dag, frá 9 í morgun til 21 í kvöld. Fyrir þá sem ekki eru staddir í höfuðborginni verður hægt að versla í gegnum síma. Átakið er í öllum verslunum Bestseller í heiminum en yfir 3.000 verslanir eru starfræktar í 38 mismunandi löndum. Hér á landi má finna 11 Bestseller verslanir en þær eru allar staðsettar í Kringlunni eða Smáralind. „Bestseller er að gera þetta í tilefni 40 ára afmælis fyrirtækisins,“ segir Lovísa Pálmadóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins, í Bítinu á Bylgjunni á morgun. „Við erum ekki að tala um álagninguna heldur söluna.“Dagurinn er kallaður Give a day.Vísir/BestsellerRagnheiður Haraldsdóttir, framkvæmdarstjóri Krabbameinsfélagsins, sagði í sama þætti að fjármunirnir sem safnast í dag í verslunum Bestseller verði notaðir til að efla upplýsingagjöf til þeirra sem leita til félagsins. „Við erum búin að ákveða að setja þetta í verkefni sem gera okkur kleift að svara með skilmerkilegri hætti spurningum sjúklinga og aðstandenda sem vilja leita til okkar,“ segir hún. „Við ætlum að efla símsvörun sem við höfum verið með og bæta við miklum betri aðgangi þannig að fólk geti sent spurningar sínar bæði nótt sem dag og þá verða svörin öflugir og viðameiri,“ segir Ragnheiður. Hún segir að starfsmenn Krabbameinsfélagsins hafi orðið orðlaus þegar Bestseller leitaði til þeirra og kynnti verkefnið. „Ég verð ennþá hálf orðlaus þegar ég hitti þetta fólk og þetta er stórkostlegt tækifæri fyrir okkur til þess að efla þessa mikilvægu þjónustu,“ segir Ragnheiður.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira