Hagvöxtur tæplega tvö prósent í fyrra Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2015 09:06 Innanlandsneyslan dregur hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,3%. vísir/hari
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,9% á árinu 2014 og hefur ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Innanlandsneyslan dregur hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,3%. Einkaneysla jókst um 3,7%, samneysla um 1,8% og fjárfesting jókst um 13,7%. Útflutningur jókst um 3,1% á sama tíma og innflutningur jókst 9,9% þannig að þrátt fyrir verulegan afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 128 milljarða króna, dró utanríkisverslun hagvöxtinn niður. Í tilkynningunni frá Hagstofunni segir að fara þurfi aftur til ársins 2006 til að sjá meiri vöxt í fjárfestingu en á síðasta ári. Hún jókst um 13,7% - þar af var um 15% vöxtur bæði í íbúðafjárfestingu og hjá atvinnuvegunum. Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum er fremur lítill, annað árið í röð, samkvæmt bráðabirgðatölum sem Seðlabankinn hefur nú birt. Það ásamt afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar á árinu 2014. Hann nam rúmum 88 milljörðum króna, 4,4% af landsframleiðslu á árinu. Til samanburðar var viðskiptajöfnuður jákvæður um 125 milljarða árið 2013. Viðskiptakjör bötnuðu um 1,9% á árinu 2014. Það ásamt jákvæðum viðskiptajöfnuði varð til þess að þjóðartekjur jukust meira en sem nam vexti landsframleiðslu eða um 3,3%. Árið 2013 jukust þjóðartekjur um 11,7%.
Mest lesið Finnsson fjölskyldan: „Það var samt eitthvað svo fallegt við þetta“ Atvinnulíf Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Viðskipti innlent „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ Atvinnulíf Sannfærð um að hún var Skoti í fyrra lífi Atvinnulíf „Haustið 1937 skrifaði afi Bjarna Ben bæjarstjóra bréf“ Atvinnulíf Slógu lán hjá Útvegsbankanum og bankastjórinn hló Atvinnulíf Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Sjá meira