Starfsmenn kaupa rannsóknarhluta Capacent Stefán Árni Pálsson skrifar 10. mars 2015 10:34 Ráðgjafar- og ráðningasvið Capacent er óbreytt og er félagið áfram í eigu starfsmanna. vísir
Starfsmenn á rannsóknarsviði Capacent hafa keypt rannsóknarhluta fyrirtækisins en þetta kemur fram í tilkynningu frá Capacent og Gallup. Rannsóknarsviðið sem starfað hefur undir merkjum Capacent Gallup mun framvegis starfa undir merkjum Gallup. Ráðgjafar- og ráðningasvið Capacent er óbreytt og er félagið áfram í eigu starfsmanna. Markmið þessara breytinga er að skerpa áherslur Capacent í ráðgjöf og ráðningarþjónustu og Gallup í rannsóknum og upplýsingaþjónustu. Capacent er ráðgjafarfyrirtæki en ráðgjafar fyrirtækisins vinna að greiningu, mótun og innleiðingu margvíslegra verkefna á sviði stefnumótunar, ráðninga, rekstrar, fjármála og upplýsingatækni. Hjá Capacent starfa um 50 ráðgjafar með víðtæka reynslu úr flestum hliðum atvinnulífsins og sækir fyrirtækið sérhæfðar lausnir og þekkingu til leiðandi alþjóðlegra samstarfsaðila. Meðal þeirra eru Microsoft, IBM (Cognos og SPSS), Qlik, CEB (áður SHL), Flexera og Wilson Learning. Capacent á einnig gott samstarf við samnefnd systurfyrirtæki á Norðurlöndunum. Gallup hefur á að skipa starfsfólki sem býr yfir mikilli reynslu af markaðs-, starfsmanna- og viðhorfarannsóknum og er fjöldi fastráðinna starfsmanna 36 í Reykjavík og á Akureyri. Með eigin vöruþróun og samvinnu við erlend rannsóknarfyrirtæki eins og Gallup, TNS, Kantar Media og Nielsen býður Gallup staðlaðar sem og sérhannaðar lausnir á sviði rannsókna og upplýsingaþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og hagsmunasamtök af öllum stærðum og gerðum. Gallup mun eins og áður kappkosta að koma skoðunum fólksins í landinu á framfæri og veita framúrskarandi þjónustu á sviði rannsókna og upplýsingaþjónustu. Capacent og Gallup starfa bæði áfram í Ármúla 13. Félögin munu eiga samstarf áfram við að uppfylla þjónustuþarfir viðskiptavina sinna.
Mest lesið Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira