„Engin spurning að verslunin lækkar verð eftir tollasamning við ESB“ Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 18. september 2015 07:00 Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra. vísir/stefán „
Þetta er klárlega mjög jákvætt fyrir íslenska neytendur,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ísland og Evrópusambandið undirrituðu í gær samning sem mun fela í sér að báðir aðilar felli niður tolla í allmörgum tollflokkum. Þá munu báðir aðilar auka verulega tollfrjálsan innflutningskvóta á ýmsar tegundir af kjöti og ostum. „Það sem er jákvætt við þetta er að þetta eru gagnkvæm niðurfelling og þá er þetta sóknartækifæri fyrir íslenskan landbúnað,“ segir hann. Tollar á unnar landbúnaðarvörur munu falla niður að jógúrti undanskildu. Unnar landbúnaðarvörur eru vörur á borð við pitsur, pasta, bökunarvörur og fleira. Tollar á óunnum landbúnaðarvörum lækka einnig. Íslensk verslun hefur lengi barist fyrir samningum af þessum toga. „Ég vona því að hún [verslunin] taki þessu fagnandi og skili þessum lækkunum til neytenda og taki þannig þátt í að halda niðri vöruverði í landinu og verðbólgu.“ Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að verslunin muni standa við sitt. „Þetta er mjög jákvætt skref og mun verða neytendum til hagsbóta,“ segir hann. „Það er náttúrulega engin spurning að verslunarfyrirtækin munu skila þessum tollalækkunum áfram til neytenda enda mikið hagsmunamál fyrir fyrirtæki sem eru í innflutningi á matvöru.“ Vonast er til að samningarnir taki gildi í árslok 2016 eða ársbyrjun 2017.
Mest lesið Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Innlent Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Fleiri fréttir Stefna að opnun Kringlunnar á fimmtudag Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Sjá meira