Þensluáhrif fjárlagafrumvarpsins 2016 metin á um 40 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 18. september 2015 11:33 Boðuðum skattalækkkunum og niðurfellingu tolla er ekki mætt með minni útgjöldum árið 2016. Vísir/Andri Marinó
Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins áætlar að þensluáhrif fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2016 nemi tæpum 40 milljörðum króna. Þetta kemur fram í greiningu þess Fjárlagafrumvarp 2016: Hvert liggur leiðin.Útgjöld ríkissjóðs nær aldrei hærra hlutfall af landsframleiðsluÍ greiningunni kemur fram að afnám tolla og lækkun skatta á einstaklinga séu jákvæðar breytingar. Mikilvægt sé að framhald verði á slíkum aðgerðum og það svigrúm sem myndast við stækkun tekjustofna sé nýtt til að einfalda skattkerfið og draga tilbaka þá aukningu sem orðið hefur á skattbyrði fyrirtækja og einstaklinga. Hins vegar séu slíka breytingar þensluhvetjandi og því nauðsynlegt að draga úr útgjöldum á móti. Ríkisfjármalin draga þó ekki úr þenslu. Útgjöld ríkissjóðs að frátöldum fjármagnskostnaði og öðrum útgjöldum sem óhjákvæmilegt er að falli á ríkissjóð hafa aukist frá árinu 2012 og hafa nær aldrei verið hærra hlutfall af landsframleiðslu. Boðuðum skattalækkkunum og niðurfellingu tolla er því ekki mætt með minni útgjöldum. Í greiningunni kemur einnig fram að af ríkjum Evrópu greiðir íslenska ríkið hæsta hlutfall landsframleiðslu í vaxtakostnað. Þrátt fyrir lítinn afgang af ríkisrekstrinum er áætlað í fjárlagafrumvarpinu að hefja niðurgreiðslu skulda. Einnig er þar tekið fram að stefnt sé á frekari niðurgreiðslu skulda skapist til þess svigrúm við afnám hafta. Uppsveifur eru aldrei eilífar og nú þegar tekjur ríkissjóðs vaxa eins og raun ber vitni er nauðsynlegt að búa í haginn. Fjármálastefnu ríkissjóðs verður að haga þannig á komandi árum að næst þegar illa árar verði útgjöldin ekki í hæstu hæðum, skattprósentur við þolmörk og skuldastaðan sligandi. Hér má lesa greininguna í heild sinni.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira