Jákvæður vöruskiptajöfnuður á síðasta ári Stefán Árni Pálsson skrifar 13. janúar 2015 15:28 7,3 milljarða króna afgangur af vöruskiptum var við útlönd í desember vísir/gva
Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hagstofu Íslands var 7,3 milljarða króna afgangur af vöruskiptum við útlönd í desember síðastliðnum. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Þar segir að ef þær reynast haldbærar munu vöruskiptin hafa verið jákvæð á árinu 2014 upp á 5,5 ma. kr. Það mun vera minni afgangur en undanfarin ár en á tímabilinu 2009-2013 lá hann á bilinu 40 til 120 ma. kr. Framan af árinu stefndi í að vöruskiptajöfnuðurinn yrði neikvæður fyrir árið í heild en töluverður afgangur í desember snéri þeirri þróun við. Töluverður viðsnúningur var í vöruskiptajöfnuði í desember frá fyrra ári þegar halli mældist upp á 2,8 ma. kr. Viðsnúningurinn var því um 10 ma. kr. Þetta skýrist bæði af meiri útflutningi og minni innflutningi, sem vegur meira. Þannig jókst útflutningurinn um 3,7 ma. kr. en innflutningurinn dróst saman um 6,4 ma. kr. Útflutningsverðmæti iðnaðarvara jókst um 6,2 ma. kr. miðað við fyrra ár en frekara niðurbrot á innflutningsliðum er ekki birt í bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Ál fellur undir þennan lið og má gera ráð fyrir að það skýri aukninguna að hluta en álverð var 8,1% hærra í desember síðastliðnum en í sama mánuði 2013. Innflutningsverðmæti í desember dróst saman um 6,4 ma. kr. milli ára. Innflutningur á eldsneyti og smurolíu dróst saman um 9,2 ma. kr. eða um 74%. Það skýrist bæði af lækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði sem lækkaði um 44% milli þessara tímapunkta en einnig af sterkara gengi krónu en gengisvísitalan var 3,5% lægri í desember en í sama mánuði árið áður.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira