Norðmenn takast á við heróínfíkla með heróíni Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. nóvember 2015 16:18 Um það bil sextán af hverri milljón íbúum heimsins láta lífið vegna of stórs heróínsskammts.
Það er alþekkt vandamál að Norðmenn glíma við einn stærsta heróínvanda vestrænna þjóða en sjötíu af hverjum milljón íbúum landsins látast vegna neyslu efnisins. Sé litið til Evrópu er aðeins Eistland með hærra hlutfall virkra notenda en Noregur. Nú stendur til að taka á vandanum með nokkuð róttækum hætti. Fjallað er um málið af AP. Hin nýja lausn er fólgin í því að gefa lengst leiddu notendunum, þeim sem ekki sýna nein viðbrögð við öðrum meðferðum, heróín. Notendurnir munu geta komið á þar til gerða staði og fengið heróínskammtinn sinn hjá heilsbirgðisstarfsfólki. Fíklarnir munu einnig geta fá húsaskjól á meðan vímunni stendur. Markmiðið er að venja fíklana af vananum með því að minnka skammt þeirra smám saman en í þeim tilfellum sem það tekst ekki þykir það huggun harmi gegn að vita af neytendunum í öruggu húsaskjóli en ekki á götunni. Einnig þykir forsvarsmönnum herferðarinnar gott að á stofunum verður boðið upp á efni þar sem gæði þess eru trygg, sprautunálarnar séu hreinar og engin hætta á að einhver óþverri leynist í því. „Við getum ekki haldið áfram að gera fíkla að glæpamönnum. Ef það á að leysa þennan vanda verða þeir að geta treyst fólki sem starfar í heilbrigðisgeiranum,“ segir Kim Arnetvedt en hann er einn af ríflega þúsund heróínfíklum sem búa í Bergen. Að hans sögn eru of margir sem telja að heilbrigðiskerfið sé of tengt lögregluyfirvöldum og forðist því að leita sér aðstoðar. Líkt og áður segir verður þetta úrræði í boði fyrir þá lengst leiddu en fyrir aðra verður áfram keyrt á hefðbundnari aðferðum.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Innlent Fleiri fréttir Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Sjá meira