80 milljarðar í samanlagðan hagnað jón hákon halldórsson skrifar 27. febrúar 2015 07:00 Steinþór Pálsson segir eiginfjárhlutfall bankans vera með því hæsta sem gerist um víða veröld. fréttablaðið/Daníel
Samanlagður hagnaður Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankans nam 81 milljarði króna á síðasta ári. Hagnaður Landsbankans var mestur eða 29,7 milljarðar króna. Hagnaður Arion banka var 28,6 milljarðar og hagnaður Íslandsbanka 22,8. Í tilfelli allra bankanna hefur sala á eignum og breytingar á virðismati eigna mikil áhrif. Landsbankinn birti uppgjör sitt í gær. „Afkoma Landsbankans á árinu 2014 var góð og fjárhagsstaðan er traust. Eiginfjárhlutfallið er með því hæsta sem þekkist meðal banka um víða veröld og lausafjárstaðan með ágætum, þrátt fyrir að bankinn hafi greitt út 20 milljarða króna arð til hluthafa á árinu, töluverðan útlánavöxt og verulega fyrirframgreiðslu inn á skuld bankans við LBI hf.,“ segir Steinþór Pálsson í afkomutilkynningunni. Eigið fé bankans nam í lok árs 2014 um 250,8 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfallið var 29,5%. Íslandsbanki og Arion birtu uppgjör sín fyrr í vikunni. Íslandsbanki telur að hagnaðurinn muni dragast saman á næstu árum þegar ekki komi til sala eigna og virðismatsbreytingar. Arion banki stefnir hins vegar á sölu eigna í ár, bæði á hlut í Reitum og Símanum. Mikið hefur verið hagrætt í starfsemi bankanna að undanförnu. Á síðasta ári fóru 57 starfsmenn frá Landsbankanum og 50 frá Arion. Á síðustu þremur árum hafa 250 farið frá Íslandsbanka.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira