Íslenskir stjórnendur launahærri en norrænir kollegar Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. janúar 2015 00:01 Krónur.
Munur á dagvinnulaunum á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndunum er mun minni meðal tekjuhærri hópa en þeim tekjulægri. Á þetta er bent í umfjöllun á vef Starfsgreinasambandsins og vísað í nýjar tölur Alþýðusambandsins. Í samanburðinum er horft til tekna fólks eftir skatta og búið að leiðrétta fyrir verðlagi. Þannig kemur fram að dagvinnulaun stjórnenda hér á landi séu um fimm prósentum hærri en að meðaltali annars staðar á Norðurlöndum. „Hluta af þessum mun má skýra með minni tekjujöfnunaráhrifum íslenska skattkerfisins, þar sem hátekjur hér á landi eru skattlagðar mun minna en annars staðar á Norðurlöndum og því verður hlutfallslega meira eftir í buddu hátekjuhópa hér,“ segir í skýrslu ASÍ.Þá kemur fram í samantekt sem fjármálaráðuneytið birti í gær, föstudag, að tekju- og eignastaða landsmanna hafi batnað verulega frá hruni. Í hruninu hafi eignir þeirra fimm prósenta sem mest áttu rýrnað um 22 prósent, en hinna 95 prósentanna um 26 prósent. „Skuldastaða þorra landsmanna hefur batnað og eru skuldir nú 43 prósentum minni en þær voru í árslok 2008,“ segir þar. Hlutdeild tekjuhæstu einstaklinganna í heildartekjum landsmanna er sögð svipuð á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum. Mestur munur á dagvinnulaunum sé hins vegar gagnvart verkafólki og fólki sem starfar við þjónustu, sölu og afgreiðslu. Hér eru dagvinnulaun verkafólks allt að 30 prósentum lægri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum, fimmtungi lægri hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira