Actavis verður Allergan Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. febrúar 2015 10:43 Húsnæði Actavis á Íslandi.
Tekjur Actavis plc, móðurfélags Actavis á Íslandi, fyrir árið 2014 jukust um 48% í 12,8 milljarða Bandaríkjadala, samanborið 8,7 milljarða dala fyrir árið 2013, ef tekið er tillit til óvenjulegra liða (e. non-GAAP). Sé ekki tekið tillit til óvenjulegra liða jukust tekjur félagsins (e. GAAP) um 51% í 13,1 milljarð dala, samanborið við 8,7 milljarða fyrir árið 2013. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (e. adjusted EBITDA) jókst um 99% í 4,5 milljarða dala, samanborið við 2,2 milljarða dala árið 2013. Handbært fé frá rekstri fyrir árið 2014 nam 2,2 milljörðum dala. Ef ekki er tekið tillit til óvenjulegra liða nam tap á hlut 7,42 dölum á árinu, samanborið við 5,27 dala tap á hlut á árinu 2013, sem útskýrist aðallega af hærri afskriftum og kostnaði vegna fyrirtækjakaupa s.s. virðisrýrnun og lögfræðikostnaði. Í afkomutilkynningu kemur fram að árið 2014 hefur verið umbreytingaár fyrir Actavis. Félagið hefur breyst úr því að vera umsvifamikið samheitalyfjafyrirtæki í alhliða lyfjafyrirtæki með kaupunum á bandaríska frumlyfjafyrirtækinu Forest Laboratories snemma á árinu 2014 og með fyrirhuguðum kaupum á öðru frumlyfjafyrirtæki, Allergan, sem tilkynnt var í nóvember sl. og ráðgert er að gangi í gegn á vormánuðum. Í kjölfar þessara fyrirtækjakaupa verður Actavis eitt af tíu stærstu lyfjafyrirtækjum heims, með starfsemi í 100 löndum, yfir 30 þúsund starfsmenn og áætlaða ársveltu sem nemur 23 milljörðum bandaríkjadala. Ákveðið hefur verið að móðurfélag sameinaðs fyrirtækis Actavis og Allergan taki upp nafnið Allergan en sú ákvörðun er háð samþykki hluthafafundar. Actavis nafnið mun halda sér á sviði samheitalyfja á ákveðnum mörkuðum en nánari útfærsla á því er í skoðun.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira