Fimmta Kea-hótelið í Reykjavík mun rísa við Þórunnartún Bjarki Ármannsson skrifar 4. júlí 2015 20:42 Fyrsta skóflustungan við Þórunnartún 4 var tekin í október. Vísir/Ernir
Keahotels hefur í hyggju að kaupa húsnæðið við Þórunnartún 4, beint á móti hinu nýopnaða Fosshóteli, þar sem unnið hefur verið að byggingu nýs hótels. Fyrirtækið er við það að ganga frá samkomulagi um kaupin á húsnæðinu, þar sem fimmta Keahótelið í Reykjavík myndi rísa.Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu. Líkt og fram hefur komið, hófust framkvæmdir á lóðinni í október síðastliðnum og stóð til að þar myndi rísa fimm hæða og 93 herbergja hótel. Fráfarandi eigendur húsnæðisins drógu hins vegar áform sín til baka eftir að bygging hófst. Fosshótel, stærsta hótel landsins, opnaði þar beint á móti í byrjun júní en byggingaraðilar hótelanna tveggja deildu þó nokkuð í vetur. Fyrir rekur Keahotels Hótel Borg, Apótek Hótel, Skugga Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík auk þriggja hótela á Norðurlandi.Uppfært 6. júlí klukkan 9:40 Magnús Einarsson hjá Landmark, fulltrúi eigenda Þórunnartúns 4 sem reisa hótelið, segir áform eigenda um að reisa hótelið, sem afhent verður rekstraraðila 1. september næstkomandi, með öllu óbreytt. „Ýmsir aðilar hafa sýnt því áhuga að kaupa rekstrarfélagið og fasteignina fullbúna. Viðræður við aðila hafa átt sér stað um aðkomu að rekstri og kaup á húseigninni fullbúinni. Ekki hefur verið gengið frá neinu í þeim efnum, enn sem komið er.“ Magnús segir framkvæmdum miða vel. Um 80 manns vinni við hana á hverjum degi enda styttist í opnun. Hótelið verði vandað 3. stjörnu borgarhótel.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira