Sjö aðilar fengu styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2015 14:14 Frá afhendingunni fyrr í dag. Mynd/Íslandsbanki
Sjö aðilar fengu í dag samtals 10 milljón króna styrk úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að sjóðurinn styrki frumkvöðlaverkefni sem leggi áherslu á endurnýjanlega orku, sjálfbæran sjávarútveg og verndun hafsvæða. „Hér má sjá yfirlit yfir þá aðila sem hlutu styrk í morgun:Optitog – LjósveiðarÆtlunin er að framleiða og markaðssetja nýja kynslóð veiðarfæra sem eru hönnuð til að stuðla að sjálfbærni togveiða. Leitað var leiða til að draga úr umhverfisáhrifum, þ.e. olíunotkun og snertingu veiðarfæris við botn og er ljósvarpan niðurstaða þeirrar vinnu. Ljósvarpan smalar saman fiskum með ljósi í stað víra, hlera og netveggja og getur svifið í fastri hæð yfir botni. Ljós hefur ekkert dráttarviðnám í vatni og auk þess smalar varpan fiskum upp af botni með ljósi án þess að snerta botn. Þannig er stuðlað að verndun búsvæða fiskistofna og dregið verulega úr notkun óendurnýjanlegra orkuauðlinda (olíu) og losun koltvísýrings. XRG PowerXRG Power sérhæfir sig í að þróa rafstöðvar sem vinna rafmagn úr jarðvarma sem er undir suðumarki, 70 – 135°C. Nú þegar er frumgerð rafstöðvarinnar til og hefur hún verið sannreynd á gólfi með góðum árangri. Markmiðið er að halda áfram að þróa rafstöðina svo hún getið unnið rafmagn úr varma fyrir heimsmarkaðinn, en ætlunin er að byrja á útfærslum í íslenskum lágvarma.Loki Geothermal, þróun þanlokaUnnið er að þróun nýrrar gerðar af höfuðlokum fyrir borholur á háhitasvæðum ásamt því að þjónusta lokana. Þeir lokar sem eru í rekstri í dag eru flestir hannaðir fyrir olíuiðnaðinn og eru því bilanir tíðar og þörf á að endurbæta þessa loka.Laki – Power On-Line GeneratorLaki vinnur að þróun lausnar sem nýtir segulsvið háspennulína til raforkuframleiðslu. Lausnin er afar vistvæn og er ætlað að skila af sér nægu afli svo aflfæða megi hverskyns rafbúnað, t.d. fjarskipta- og eftirlitsbúnað. Meginmarkmið með lausninni er að búa til vöru sem meðal annars eykur rekstraröryggi flutnings- og dreifikerfa raforku, einfaldar eftirlit og viðhaldsvinnu, eykur mannöryggi og dregur úr slysahættu.Orkey – hráefni til díselframleiðsluVerkefnið snýst um að kanna hagkvæmni þess að vinna olíu úr lífrænum úrgangi sem fellur til á Norðurlandi. Verði þessi verkefni að veruleika munu þau leysa langvarandi hráefnisskort og auka enn frekar nýtingu á úrgangi og framleiðslu á endurnýjanlegu eldsneyti á Eyjafjarðar- svæðinu. Verkefnið fellur einnig vel að markmiðum Ísland sem hefur skuldbundið sig samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins að hafa 10% hlut endurnýjanlegrar orku í samgöngum árið 2020.Breki harðfiskurBreki er harðfiskur í nýjum umbúðum þar sem hann hefur verið poppaður upp í nútíma snakkvörubúning með það að markmiði að auka sölu hans á erlendum mörkuðum og ekki síður til erlendra ferðamanna á Íslandi. Nýjungin felst í því að harðfiskurinn er meðhöndlaður í örþunnar og sléttar harðfiskflögur sem minna á snakk. Með því að útfæra lögun, áferð og stærð á snakkflögunum er verið að taka mikilvægt skref í átt að alþjóðlegum mörkuðum.Aðkoma kvenna í sjávarútvegiMarkmiðið með verkefninu er að kortleggja tækifæri til vaxtar fyrir konur innan sjávarútvegsins með aukinni þátttöku þeirra innan greinarinnar. Með því að greina núverandi stöðu verður hægt að bera kennsl á tækifæri til nýsköpunar og jafnframt leiðir til að efla hlut kvenna í frumkvöðlastarfsemi, aðkomu og þátttöku í sjávarútvegi og setja stefnuna fram á við hvað málefnið varðar í íslenskum sjávarútveg.“ Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka var stofnaður árið 2008. Íslandsbanki leggur til 0,1% af vöxtum Vaxtasprota, sem er einn af sparnaðarreikningum bankans, til Frumkvöðlasjóðsins.
Mest lesið Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Viðskipti innlent Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Viðskipti innlent Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Sjö Airbus-þotur verða komnar í flotann í vetur Viðskipti innlent Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Viðskipti innlent Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Viðskipti innlent Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Ráðin framkvæmdastjóri Frama Afar ósátt við „óskiljanlega“ sekt Samkeppniseftirlitsins Taka sæti í framkvæmdastjórn Arctic Adventures Landsvirkjun sektuð um 1,4 milljarða fyrir að undirbjóða keppinauta Kalt stríð sé í gangi á netinu Sjö Airbus-þotur verða komnar í flotann í vetur Sjá meira
Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Viðskipti innlent
Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Viðskipti innlent