Hagnaður Arion fimmfaldast á milli ára Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. maí 2015 18:45 Afkoma Arion á fyrsta fjórðungi markast af óreglulegum liðum. En Höskuldur Ólafsson segir að regluleg starfsemi hafi einnig skilað góðri afkomu.
Hagnaður Arion banka á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 14,9 milljörðum króna, en var 2,9 milljarðar á sama tíma í fyrra. Í afkomutilkynningu segir að hagnaðurinn markist mjög mikið af óreglulegum liðum. Þar hafa mest áhrif einskiptisatburðir eins og skráning og sala bankans á hlutum í fasteignafélaginu Reitum og alþjóðlega drykkjaframleiðandanum Refresco Gerber. Höskuldur Ólafsson, forstjóri Arion, segir að regluleg starfsemi bankans hafi líka gengið vel. „Arðsemi reglulegrar starfsemi er tæplega 10% á tímabilinu. Við höldum áfram að vinna að því að styrkja grunnrekstur bankans. Við höfum þar lagt mikla áherslu á að auka hlutdeild þóknanatekna í heildartekjum bankans og jukust þær um 19% miðað við sama tímabil fyrir ári. Af þóknanatekjum bankans koma rúm 80% frá fyrirtækjum en tæp 20% úr þjónustu við einstaklinga í viðskiptabankanum,“ segir Höskuldur. Arðsemi eigin fjár bankans var 35,1 prósent á fjórðungnum samanborið við 7,8 prósent á sama tímabili árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi á tímabilinu nam 4,0 milljörðum króna samanborið við 1,7 milljarða á sama tímabili 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 9,8 prósent á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 4,6 prósent á sama tímabili 2014. Heildareignir námu 1.004,3 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira