Viðskipti innlent

Atvinnuleysi 2,9 prósent: Hlutfall starfandi fólks ekki hærra síðan júní 2008

Atli Ísleifsson skrifar
Samanburður mælinga fyrir júní 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda jókst um 2,7 stig.
Samanburður mælinga fyrir júní 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda jókst um 2,7 stig. Vísir/GVA
Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli mældist í 2,9 prósent í júní. Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 202.200 á aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði í júní 2015, sem jafngildir 86,6% atvinnuþátttöku.

Í frétt á vef Hagstofunnar segir að af þessum 202.200 voru 196.400 starfandi og 5.800 án vinnu og í atvinnuleit. „ Hlutfall starfandi af mannfjölda var 84,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%.

Samanburður mælinga fyrir júní 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 1,3 prósentustig og hlutfall starfandi fólks af mannfjölda jókst um 2,7 stig. Það þarf að horfa aftur til júní 2008 til að finna hærra hlutfall starfandi fólks. Atvinnulausum fækkaði nokkuð milli ára eða um 3.200 manns og hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 1,7 prósentustigum.“

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi 3,2% í júní

Í fréttinni segir að samkvæmt árstíðaleiðréttingu hafi fjöldi fólks á vinnumarkaði verið 190.800 í júní 2015 sem jafngildir 83,2% atvinnuþátttöku, sem er 0,2 prósentustigum hærri en hún var í maí.

„Fjöldi atvinnulausra í júní var samkvæmt árstíðaleiðréttingu 6.100 sem er fækkun um 2.500 manns frá því í maí. Hlutfall atvinnulausra minnkaði úr 4,4% í maí í 3,2% í júní. Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í júní 2015 var 80,5%, sem er aukning um 1,3 prósentustig frá því í maí. Leitni vinnuaflstalna sýnir að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,2 prósentustig sé horft til síðustu sex mánaða og um 0,8 stig á síðustu tólf mánuðum. Hlutfall starfandi síðustu sex mánuði hefur aukist um 0,6 prósentustig og um 1,2 stig síðustu tólf mánuði.“

Nánar má lesa um Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×