Nýtt nafn fyrir betri möguleika á atvinnu Viktoría Hermannsdóttir skrifar 7. maí 2015 11:00 Patrycja ákvað að breyta eftirnafni sínu til þess að eiga meiri möguleika á því að komast í atvinnuviðtöl. Vísir/Vilhelm „
Ég hélt þetta skipti engu máli en svo fóru fleiri að segja mér frá því að erlenda eftirnafnið gæti haft áhrif á það hvort ég fengi vinnu,“ segir Patrycja Wittstock Einarsdóttir, sem breytti föðurnafni sínu til þess að eiga auðveldara með að fá vinnu. Patrycja skrifaði pistil inn á síðuna vertunaes.is sem hefur vakið mikla athygli. Þar sagði hún frá því hvernig hún hafði sótt um yfir fjörutíu sumarvinnur en aðeins fengið tvö viðtöl. Í öðru atvinnuviðtalinu sá Patrycja að umsókn hennar var í bunka með umsóknum merktum erlendum nöfnum. Hún fékk ekki starfið en ákvað eftir það að skipta um eftirnafn. Hitt atvinnuviðtalið gekk betur, hún fékk starfið og atvinnurekandinn tók sérstaklega fram að á vinnustaðnum liðust ekki fordómar. Reynslan af atvinnuviðtalinu sem illa gekk sat í henni.Anna Wozniczka Fréttablaðið/Stefán „Þetta kom mér á óvart því ég hef aldrei upplifað fordóma áður,“ segir Patrycja, sem flutti til Íslands frá Póllandi ásamt móður sinni þegar hún var fimm ára. Mæðgurnar fluttu til fósturföður hennar á Ísafirði þar sem hún bjó þar til hún hafði klárað menntaskóla. „Á Ísafirði þekkja allir alla og nöfnin skipta ekki máli,“ segir hún. Þegar hún hins vegar fór að sækja um sumarstörf í Reykjavík horfði málið öðruvísi við. „Maður fékk á tilfinninguna að það væri ekki einu sinni kíkt á umsóknina út af nafninu,“ segir Patrycja. Eftir að Patrycja fór að segja frá þessu, meðal annars í erindi á Jafnréttisdögum, hefur hún fengið mikil viðbrögð. „Það hafa margir sagst vera að lenda í því sama.“ Ania Wozniczka, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, segist hafa heyrt mörg dæmi um að fólk telji erlent nafn hindra að það hljóti sömu tækifæri og þeir sem eru með íslenskt nafn. „Margir standa undir öllum kröfum í umsóknum en fá ekki einu sinni svar. Við könnumst við margar sögur frá fólki sem hefur lent í þessu og velt fyrir sér hvort þetta sé ástæðan en auðvitað er ekkert hægt að fullyrða um það,“ segir Ania. „Ég held það sé mikið af huldum fordómum hér, fólk er kannski ekki að tala illa um innflytjendur en þeir hafa ekki sömu tækifæri.“ Ania segist hafa heyrt dæmi þess að fólk sendi inn atvinnuumsóknir með íslensku eftirnafni til þess að eiga meiri möguleika á að komast í viðtal. Ania bendir á að þetta einskorðist ekki við atvinnumarkaðinn þó það sé líklega mest þar. „Þetta á líka við um leigumarkaðinn. Stundum meira segja er tekið fram í auglýsingum að útlendingum verði ekki leigt,“ segir Ania Wozniczka.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Fleiri fréttir „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Sjá meira