Afnám vörugjalda: Verðlækkanir ekki í samræmi við væntingar Stefán Árni Pálsson skrifar 7. maí 2015 15:56 Í könnun ASÍ kemur Í ljós að ekki séu allar verslanir að lækka verð.
Samkvæmt könnunum verðlagseftirlits ASÍ eru verðlækkanir á heimilistækjum vegna afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts mun minni en gera mátti ráð fyrir en þetta kemur fram í könnun ASÍ. Áætla má að verð allra þeirra heimilistækja sem skoðuð voru í könnuninni hefði átt að lækka um meira en nítján prósent en sú er ekki raunin. Reyndar lækkar verð í 41 prósent tilvika um meira en tuttugu prósent en það vekur athygli að í tuttugu prósenta tilvika hækkaði verð á heimilistækjum eða það stóð í stað þrátt fyrir virðisaukaskattslækkun úr 25,5% í 24% og afnám vörugjalda um 20%-25%. Verðlagseftirlitið áætlar að vörur eins og sjónvörp, útvörp og myndspilarar sem áður báru 25 prósent vörugjald ættu að lækka um 22,2%, með vsk. lækkuninni. Þvottavélar, kæliskápar, uppþvottavélar og helluborð sem áður báru 20% vörugjald og hefðu átt að lækka um 19,2%, með vsk. lækkuninni. Athygli vekur að engin vara sem skoðuð var í versluninni Rafha lækkaði um 19% eða meira og innan við helmingur þeirra vara sem skoðaðar voru í Max raftækjum og Eirvík. Verslunin Smith og Norland lækkaði verð um meira en 20% hlutfallslega oftast eða í tæplega 80% tilfella.Í tuttugu prósent tilfella hækkar verð eða stendur í staðKannanir verðlagseftirlits ASÍ á verði heimilistækja voru annars vegar gerðar í byrjun október 2014 og hins vegar í apríl 2015 en á tímabilinu var gengi krónunnar stöðugt og því ekki hækkunarvaldur. Meðfylgjandi tafla sýnir fjölda þeirra vara sem kannaðar voru í einstökum verslunum og á hvaða bili verð viðkomandi vara breyttist. Þannig eru sem dæmi 8 vörur í samanburðinum frá versluninni Einar Farestsveit; verð tveggja vara var óbreytt, verð tveggja lækkaði á bilinu 10-14,9% og verð fjögurra lækkaði um meira en 20%.mynd/asíÍ könnun ASÍ kemur Í ljós að ekki séu allar verslanir að lækka verð. Í ríflega 20% tilfella hækkar verð milli mælinga eða er óbreytt, í 13% tilfella lækkar verð um um minna en 10%, í 13% tilfella lækkar verð um 10-14,9%, í 13% tilfella lækkar verð á bilinu 15-19,9% og í um 40% tilvika lækkar verð um meira en 20%. Samkvæmt könnunum verðlagseftirlitsins eru verðlækkanir minni en gera mátti ráð fyrir. Það er einnig niðurstaðan þegar gögn Hagstofu Íslands eru skoðuð en samkvæmt mælingum Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs hefur verð á sjónvörpum, útvörpum og myndspilurum t.a.m. lækkað að meðaltali um 18% frá því í september 2014 og verð á stærri heimilistækjum um tæp 13%.
Mest lesið „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira