Ríkisskattstjóri, MTR og Héraðsdómur Suðurlands stofnanir ársins Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2015 22:41 Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Vísir/SFR
Ríkisskattstjóri, Menntaskólinn á Tröllaskaga og Héraðsdómur Suðurlands voru valdar stofnanir ársins 2015. Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2015 og Fyrirtæki ársins 2015 voru kynntar í Hörpunni síðdegis í dag. Þetta er í tíunda sinn sem SFR - Stéttarfélags í almannaeigu velur Stofnun ársins en könnunin er unnin af Gallup í samstarfi við VR, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og efnahags- og fjármálaráðuneytið. Í tilkynningu segir að alls hafi tæplega 50 þúsund starfsmenn á almennum og opinberum vinnumarkaði könnunina fengið senda og er val á Stofnunum ársins byggt á svörum tæplega 12 þúsund starfsmanna hjá ríki og sjálfseignarstofnunum. „Stofnanir ársins 2015 eru þrjár, ein úr hverjum stærðarflokki.Ríkisskattstjóri er sigurvegari í flokki stórra stofnana sem hafa 50 starfsmenn eða fleiri.Menntaskólinn á Tröllaskaga er stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana þar sem starfsmenn eru 20-49 talsins.Héraðsdómur Suðurlands bar sigur út býtum annað árið í röð í flokki minni stofnana þar sem starfsmenn eru færri en 20.Titilinn Hástökkvari ársins 2015 fá þrjár stofnanir að þessu sinni. Þærhækka allar jafn mikið milli ára. Þær eru:Framhaldsskólinn í Austur-SkaftafellssýsluFramhaldsskólinn í VestmannaeyjumMinjastofnun Íslands.Í hverjum flokki hljóta efstu stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnun, eins og rakið er hér að neðan. Í flokki stærstu stofnana eru fimm fyrirmyndarstofnanir. Þær eru auk Ríkisskattstjóra, FjölbrautaskóliSuðurnesja, Reykjalundur, Íslenskarorkurannsóknir og FjölbrautaskólinnviðÁrmúla. Í flokki meðalstórra stofnana eru fyrirmyndarstofnanirnar einnig fimm. Þær eru auk MenntaskólansáTröllaskaga, Einkaleyfastofa, FjölbrautarskóliSnæfellinga, Landmælingar og FramhaldsskólinníAusturSkaftafellssýslu. Í flokki minnstu stofnananna eru fyrirmyndarstofnanirnar þrjár, þ.e. HéraðsdómurSuðurlands og Úrskurðarnefndumhverfis- ogauðlindamála og Persónuvernd.Um niðurstöðurnar:Í könnuninni eru mældir þættir á borð við ánægju og stolt, starfsanda, trúverðugleika stjórnenda, launakjör, sjálfstæði í starfi, vinnuskilyrði, sveigjanleika vinnu og ímynd stofnunar. Það er ánægjulegt að sjá að fleiri stofnanir blanda sér í toppbaráttuna en áður. Einkum er áberandi að framhaldsskólar landsins koma betur út úr könnuninni nú. Heildareinkunn allra þátta í könnuninni stendur nánast í stað og hefur verið nokkuð svipuð undanfarin ár. Einkunnin fyrir þáttinn ánægja með launakjör er hærri nú hjá framhaldsskólunum og má væntanlega rekja hærri heildareinkunn og betri árangur í könnuninni til þess. Lægst er heildareinkunnin hjá stofnunum á sviði löggæslu, dómstóla og fangelsa, en hæst er hún meðal stofnana í verslun og þjónustu. Þá sýna niðurstöðu einnig að þeir sem hafa mannaforráð gefa yfirleitt hærri einkunn en þeir hafa þau ekki. Einnig gefa stjórnendur hærri einkunn en flestar aðrar starfstéttir að undanskyldu sölu- og afgreiðslufólki. Konur eru sem fyrr heldur ánægðari á heildina litið. Þær mælast ánægðari í sjö af átta heildarþáttum könnunarinnar. Ánægja með launakjör eru hins vegar heldur meiri hjá körlum en konum. Þó er athyglisvert að sjá að það dregur saman á milli kynjanna í afstöðu til launa á milli ára. Enn er talsverður munur á milli opinberra starfsmanna og félagsmanna VR ef kannanir félaganna eru bornar saman og eru VR félagar ánægðari með alla ofangreinda þætti í könnuninni. SFR stéttarfélag í almannaþjónustu óskar starfsmönnum og stjórnendum þessara stofnana innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og óskar þeim öllum bjartar framtíðar.“
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira