Það ætti að vera á allra færi að detta inn á listmarkaðinn Sæunn Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2015 07:00 Kári Finnsson segir að erfitt sé að meta heildarveltuna á íslenska myndlistarmarkaðnum. Mynd/Björn Berg „
Það geta allir byrjað að safna myndlist, það geta allir tileinkað sér þetta með einum eða öðrum hætti. Listmarkaðurinn er ekki ýkja flókinn, hann er bara skemmtilegur. Að koma þessu til skila til áhorfenda var það sem við lögðum upp með á fundinum.“ Þetta segir Kári Finnsson, listfræðingur og hagfræðingur. Kári fjallaði um listmarkaðinn bæði hér á landi og í útlöndum á fræðslufundi VÍB undir yfirskriftinni Hvernig fjárfesti ég í myndlist? Kári gerði grein fyrir listmarkaðnum á heimsvísu í erindi sínu. Heildarvelta hans á síðasta ári nam yfir fimmtíu milljörðum evra, eða 7.200 milljörðum íslenskra króna. Það jafngildir tæplega fjófaldri landsframleiðslu á Íslandi. Það hefur verið ákveðin sprenging á síðustu tíu árum. Veltan náði hæð árið 2007, tók síðan dýfu, en hefur nú náð sér aftur á strik og hefur aldrei verið jafn mikil. Færri verk eru að seljast en áður, en fyrir hærri upphæðir. Til marks um þetta má nefna að dýrasta verk sem selt hefur verið, myndin Hvenær muntu gifta þig? eftir Paul Gauguin, var seld á 300 milljónir Bandaríkjadala, eða 39,5 milljarða íslenskra króna. Kári vék að því hvort hægt væri að horfa á myndlist sem fjárfestingarkost. „Það sem ég reyndi að leggja áherslu á á fundinum er að myndlist sé eðlisólík fjárfestingarkostum eins og verðbréfum út af mörgum þáttum, það er ekki jafn mikill seljanleiki og þess háttar,“ segir hann. „Ég held að þeir sem standa sig best í að safna og eiga verðmætustu söfnin sé fólk sem er safnar af ástríðu. Þeir sem safna eftir augunum en ekki eftir verðmiðanum munu á endanum græða mest,“ segir Kári. Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerís, ræddi að erindi Kára loknu við hann um myndlistarheiminn á Íslandi. Kári sagði að hér á landi væri mjög blómstrandi og góð listasena og hefði verið um nokkurra ára bil. Hann segir hins vegar erfitt að meta veltuna á íslenskum myndlistarmarkaði þar sem gögn eru af afskaplega skornum skammti. „Ástæðan er sú að sala fer mikið fram utan hefðbundinna sölustaða, þá annaðhvort manna á milli eða beint frá listamönnum,“ segir Kári. Rauði þráðurinn í samtali þeirra var að það er ekkert rétt eða rangt í myndlistarkaupum. Það er ekki endilega rétt að kaupa dýr verk eftir þekkta meistara. Besta leiðin til að byrja er að skoða málverk og reyna að finna sinn eigin smekk. Oft getur verið betra að kaupa ódýrari verk frá minna þekktum listamanni og fá kannski betri ávöxtun út úr því. „Það skemmtilegasta við að safna list eftir samtímalistamenn er að þú getur fengið tækifæri til að kynnast listamönnum og fylgjast með þeim þroskast. Þetta er eitthvað sem þú getur gert alveg frá því að þú ert tvítugur. Þegar listamennirnir eru ungir þá eru verkin ódýr og það ætti að vera á allra færi að detta inn á þann markað,“ segir Kári.Hvenær muntu gifta þig? eftir Gauguin er dýrasta verk sem selt hefur verið.Nordicphotos/GettyHér fyrir neðan má sjá upptöku af fundinum sem fram fór á fimmtudag.
Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent Fleiri fréttir Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent