Ný hluthafastefna Gildis-lífeyrissjóðs Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2015 13:20 Markmið Gildis-lífeyrissjóðs er m.a. að beita sér sem eigandi í félögum þar sem sjóðurinn er hluthafi. Vísir/Anton
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur samþykkt nýja hluthafastefnu sjóðsins. Hluthafastefnan markar stefnu og stjórnarhætti Gildis-lífeyrissjóðs sem eiganda í þeim félögum sem hann fjárfestir í en þetta kemur fram í tilkynningu frá Gildi. Stjórn sjóðsins vill stuðla að auknu gegnsæi og ábyrgð sem eigandi og fjárfestir á markaði. Markmið Gildis-lífeyrissjóðs er m.a. að beita sér sem eigandi í félögum þar sem sjóðurinn er hluthafi, í þeim tilgangi að stuðla að langtímahagsmunum og sjálfbærni þeirra og ábyrgum stjórnarháttum. „Innlendur hlutabréfamarkaður hefur verið að stækka og eflast undanfarin ár sem leiðir til nýrra vinnubragða hagsmunaaðila á markaði, bæði hlutafélaga og ekki síður fjárfesta. Sjóðurinn er orðinn virkari hluthafi í félögum en áður og vill því axla ábyrgð til samræmis við það hlutverk,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að við endurskoðun hluthafastefnunnar horfði stjórn sjóðsins meðal annars til þróunar og umræðu í Evrópu og OECD tengdri endurskoðun á reglum um stjórnarhætti og innleiðingu þeirra ásamt umræðu hagsmunaaðila hérlendis. „Stjórn sjóðsins vill í takt við þá þróun leggja sitt af mörkum til þess að bæta stjórnarhætti og stuðla þannig að framþróun á innlendum hlutabréfamarkaði.“ Gildi-lífeyrissjóður hefur innleitt vissar breytingar á undanförnum árum í átt að bættum stjórnarháttum, s.s. með birtingu hluthafastefnu, samskipta- og siðareglum og skipan valnefndar. „Á síðastliðnu ári auglýsti sjóðurinn eftir einstaklingum sem gefa kost á sér til setu í stjórnum félaga. Við val á einstaklingum sem Gildi tilnefnir og styður til stjórnarsetu fylgir sjóðurinn faglegu ferli þar sem hæfi, menntun, þekking og reynsla er könnuð. Einnig er hugað að samsetningu hverrar stjórnar með hliðsjón af fjölbreyttri þekkingu, reynslu og kynjahlutfalli.“ „Við teljum það eitt af hlutverkum okkar hjá Gildi að stuðla að ábyrgum og góðum stjórnarháttum. Innleiðing á nýrri hluthafastefnu er hluti af því og vonum við að stjórnir félaga sem sjóðurinn hefur fjárfest í og aðilar á markaði taki vel í þessa viðleitni sjóðsins,“ segir Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis. Helstu áherslur í nýrri hluthafastefnu: Stjórnarhættir Gildis-lífeyrissjóðs sem hluthafa eru útfærðir með skipulegum hætti ásamt eftirfylgni hans og áherslum. Lögð er áhersla á gagnkvæm samskipti við stjórnir og kveðið á um form, fyrirkomulag og efni samskipta með skipulegum hætti. Áhersla er lögð á aukna virkni hluthafafunda sem vettvang fyrir hagsmunaaðila til að skiptast á skoðunum ásamt tillögugerð og ákvarðanatöku. Sett eru fram tiltekin viðmið sem sjóðurinn telur rétt að hafa til hliðsjónar við mótun starfskjarastefna félaga, greiningu á áhrifum þeirra og viðmið um upplýsingar sem sjóðurinn telur æskilegt að séu tilgreindar í skýrslum um framkvæmd starfskjarastefna.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira