Frumvarp Illuga um útvarpsgjald fast í ríkisstjórn Heimir Már Pétursson skrifar 3. desember 2015 13:23
Frumvarp menntamálaráðherra um breytingar á útvarpsgjaldi er óafgreitt í ríkisstjórn og viðurkennir ráðherrann að deildar meiningar séu um frumvarpið innan stjórnarinnar. Formaður Vinstri grænna varar við afleiðingum þess að lækka gjaldið á næsta ári. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna og fyrrverandi menntamálaráðherra spurði eftirmann sinn Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra að því í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun hvað liði boðuðu frumvarpi hans um að hætta við lækkun útvarpsgajaldsins á næsta ári. En samkvæmt gildandi lögum á gjaldið að lækka á næsta ári. „Mig langar að spyrja hæstvirtan ráðherra hvað líður frumvarpi hans þar sem þessari lækkun er aflýst. Mig langar líka að spyrja hæstvirtan ráðherra hvort hann geti upplýst okkur um hvað það þýði fyrir Ríkisútvarpið ef þessi lækkun gengur í gegn,“ sagði Katrín og vildi vita hvort von væri á frumvarpi menntamálaráðherra fyrir áramót. Illugi sagðist þegar hafa lagt frumvarp þessa efnis fyrir ríkisstjórn. „Það mál er semsagt á vettvangi ríkisstjórnarinnar og ég vonast auðvitað tll að hægt verði að afgreiða það út úr ríkisstjórninni sem fyrst. En málið er þar. Það er rétt sem háttvirtur þingmaður nefnir hér að Ríkisútvarpið hefur náð verulegum árangri hvað varðar reksturinn,“ sagði Illugi. „Frumvarpið er komið fram og er á vettvangi ríkisstjórnarinnar, sagði hæstvirtur ráðherra. Það vita það auðvitað allir hér í þessum sal að ef frumvarpið er á vettvangi ríkisstjórnarinnar hefur umræðu um það verið frestað af einhverjum sökum,“ sagði Katrín. „Ég auðvitað legg ekki fram frumvarp í ríkisstjórn nema ég geri það í þeirri trú að það verði afgreitt út úr ríkisstjórninni. Annars myndi ráðherra ekki leggja fram þar frumvarp. En það liggur fyrir að það eru deildar meiningar um þetta mál. Það þarf ekkert að koma á óvart. Sem birtist auðvitað í því að núverandi og núgildandi lög gera ráð fyrir öðru fyrirkomulagi en getið er um í þessu frumvarpi,“ sagði menntamálaráðherra. Ef lækkun útvarpsgjaldsins verði ekki dregin til baka muni það koma mjög harkalega niður á því efni sem Ríkisútvarpið framleiðir.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira