Viðskipti innlent

Landsvirkjun endurfjármagnar 12 milljarða lán

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Með nýja láninu er Landsvirkjun að endurfjármagna lán frá 2011.
Með nýja láninu er Landsvirkjun að endurfjármagna lán frá 2011.
Landsvirkjun skrifaði í gær undir sambankalán í íslenskum krónum til sjö ára að fjárhæð 12 milljarðar króna. Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum.

Markmið lántökunnar er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan og greiðan aðgang að fjármögnun í íslenskum krónum. Í tilkynningu kemur farm að með lántökunni endurfjármagnar Landsvirkjun eldra sambankalán frá árinu 2011.

Íslandsbanki, ásamt Arion banka og Landsbankanum veita lánið sem samanstendur af jöfnum hlut frá bönkunum þremur, 4 milljarðar hver hlutur. Íslandsbanki sá um skjalagerð og umsýslu við lánveitinguna fyrir hönd Landsvirkjunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×