Unnið út í eitt í símaveri Strætó Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 17. janúar 2015 00:01 "Við sjáum fram á að þjónustan verði eins góð og best verður á kosið,“ segir Júlía Þorvaldsdóttir, sviðsstjóri á farþegaþjónustusviði Strætó. Fréttablaðið/GVA
Unnið er út í eitt í símaveri Strætó. Vinnudagarnir hafa verið langir en þrátt fyrir álagið er stemningin góð, að sögn Júlíu Þorvaldsdóttur, sviðsstjóra á farþegaþjónustusviði Strætó. „Við sjáum fram á að þjónustan verði eins góð og best verður á kosið og við erum sannfærð um að verkefnið er í bestu höndum sem völ er á,“ tekur hún fram. Starfsmönnum við símsvörun hjá Strætó hefur verið fjölgað frá því að fyrirtækið tók við rekstri Ferðaþjónustu fatlaðra um áramótin. „Núna eru átta til tíu manns við símsvörunina og fleiri þegar mikið mæðir á. Það leggjast allir á eitt við að svara, bæði stjórnendur og aðrir. Við eigum ótrúlega góð samskipti við flesta farþega og forstöðumenn sambýla og heimila. En það hefur verið vegið verulega að okkar starfsfólki, bæði starfsfólki í þjónustuveri og bílstjórum Ferðaþjónustunnar. Umræðan hefur verið óvægin og ósanngjörn á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum,“ segir Júlía. „Til þess að þjónustan verði sem best skiptir okkur máli að fá allar ábendingar til okkar frá fyrstu hendi, það er þeim sem sjálfir nota Ferðaþjónustu fatlaðra. Þannig getum við komið í veg fyrir að það sem fer úrskeiðis gerist ekki aftur. Málin leysast ekki á Facebook eða í fjölmiðlum.“ferðaþjónusta Meðalfjöldi símtala á dag í þjónustuver Strætó hefur verið 980. Fréttablaðið/PjeturVerkefnin við símsvörun hafa fjórfaldast frá áramótum, að sögn Júlíu. „Einstaka viðskiptavinir Ferðaþjónustu fatlaðra eru stressaðir og upplifa þjónustuna verri en hún raunverulega er.Meðalbiðtíminn í síma hefur hins vegar verið rúmlega tvær mínútur. Það mæddi mest á 5. og 6. janúar en símtölum hefur fækkað síðan þá.“ Júlía bendir á að aldrei verði komist hjá mistökum. „Við þurfum hins vegar að fá að vita milliliðalaust hver atvikin eru þannig að hægt sé að koma í veg fyrir að þau verði endurtekin. Við trúum hundrað prósent á þetta verkefni og hlökkum til samvinnu við farþega og starfsfólk Ferðaþjónustu fatlaðra.“
Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Sjá meira