Fór með drauminn í farteskinu og ástríðuna að vopni Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2015 15:49 Þorsteinn Baldur Friðriksson. vísir
Hann fór með drauminn í farteskinu og ástríðuna að vopni til Kaliforníu og vann hugu og hjörtu …og ekki síst veski fjárfestanna í Kísildal, þar sem samkeppnin er hvað hörðust í þessum bransa. Jón Ársæll Þórðarson fylgist með Þorsteini Baldri Friðrikssyni, framkvæmdarstjóra Plain Vanilla, í næsta þætti af Sjálfstæðu fólki sem verður sýndur á sunnudagskvöldið á Stöð 2. Þessi sigurganga hefur borgað sig margfalt til baka þar sem hugarfóstur hans, smáforritið QuizUp hefur slegið í gegn svo um munar með 30 milljón notendur um allan heim í dag. Í kjölfarið komu tilboð um kaup á fyrirtæki hans uppá hátt í 20 milljarða króna sem hann hafnaði og ætlar sér enn stærri hluti með QuizUp forritið í framtíðinni. Honum er líka um munað að halda starfseminni hér á Íslandi, enda segir hann að hér sé mikið úrval af góðu starfsfólki. Jón fylgir Þorsteini meðal annars vestur um haf á stjórnarfund þar sem hann heillaði menn enn og aftur uppúr skónum með framtíðaráformum sínum. Þorsteinn er mikill vinnuþjarkur og fékk Jón Ársæll að vera fluga á vegg hjá honum í vinnunni þar sem frumleg vinnubrögð eru allsráðandi. Hann hefur á sama tíma komið sér upp glæsilegu heimili á Ægissíðunni og við fylgjumst með þeim breytingum sem þar áttu sér stað. Þrátt fyrir alla vinnuna leggur Þorsteinn mikla áherslu á fjölskylduna og eyðir eins miklum tíma og hann getur með börnum sínum.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira